Greta Salóme eltir drauma sína og kemur hlutunum í verk
Greta Salóme, söngkona, fiðluleikari, tónskáld og textahöfundur, er með mörg járn í eldinum þessa dagana eins og vanalega. Um verslunarmannahelgina kom hún fram víða um land: Akureyri, Neskaupstað og Flúðum og fyrr í vikunni spilaði hún fyrir Guðna Th. forseta. Næst á dagskrá tekur við kynning í Gung Ho-hlaupinu á morgun, 12. ágúst, tveir túrar með stóra sýningu á skemmtiferðaskipum, hljóðfæraleikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hinir ýmsu tónleikar. Auk þess sér Greta Salóme um æfingar og undirbúning fyrir Halloween Horror Show Rokktónleikasýningu, sem haldin verður í Háskólabíó 28. október næstkomandi og hún er jafnframt einn söngvara sýningarinnar. Greta Salóme svarar spurningum vikunnar.
Fædd og uppalin? Mosfellsbæ.
Mér finnst gaman að … vera til. Enginn dagur eins og alltaf einhverjar áskoranir.
Síðasta kvöldmáltíðin: Nóa Síríus súkkulaði í hvaða formi sem er.
Brennd eða grafin? Brennd.
Hvað gerirðu milli kl. 17–19? Aldrei það sama! Fer eftir í hvaða landi ég er, haha.
Samfélagsmiðlar eða dagblöðin? Samfélagsmiðlar.
Hvað ertu með í vinstri vasanum? Laura Mercier gloss.
Bjór eða hvítvín? Hvítvín.
Hver stjórnar fjarstýringunni á þínu heimili? Ég man bara ekki hvenær var kveikt á sjónvarpinu síðast heima hjá mér þannig að fjarstýringin er yfirleitt frekar einmana greyið.
Hvernig var fyrsti kossinn? Efni í góða minningu.
Hver væri titill ævisögu þinnar? Í kappi við tímann.
Hver er draumabíllinn? Ég er á draumabílnum, Toyota CHR! Í mínum lit … svörtum.
Fyrsta starfið? Fékk fyrst borgað fyrir að spila þegar ég var 12 ára gömul og hef nú eitthvað geta hækkað verðskrána síðan þá.
Fallegasti staður á landinu? Laugarvatn!
Hvaða ofurkraft værir þú til í að vera með? Ef ég kæmi fleiri klukkutímum í sólarhringinn væri ég í toppmálum.
Gist í fangaklefa? Nei, en alltaf langað að prófa.
Sturta eða bað? Sturta … hver hefur tíma fyrir bað?
Húðflúr eða ekki? Ekki ennþá, en myndi telja yfirgnæfandi líkur á einu fljótlega.
Hvaða leynda hæfileika hefur þú? Ég er lygilega góð Shakira-eftirherma þótt ég segi sjálf frá.
Hvað fékk þig til að tárast síðast? Það vantaði Pepsi Max þegar ég kom heim eftir að hafa spilað um allt land um verslunarmannahelgina. Ekki laust við að ég hafi tárast smá.
Fyrirmynd í lífinu? Svo margir! Fjölskyldan mín er mín helsta fyrirmynd.
Hvaða sögu segja foreldrar þínir endurtekið af þér? Ég á víst að hafa komið grátandi heim eftir fyrsta skóladaginn og sagt: „Ég á minnstu skóna“. Ég á ennþá minnstu skóna en hef lært að lifa með því.
Ertu með einhverja fóbíu? Trúðar! Get þá ekki!
Hver er besta ákvörðun sem þú hefur tekið? Að fylgja minni sannfæringu og standa og falla með ákvörðunum mínum.
Furðulegasti matur sem þú hefur borðað? Snákur. Áferðin fór með mig.
Hvað er neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í? Þau eru ansi mörg en ég var að túra á skemmtiferðaskipi um daginn og fór út að hlaupa í einni höfn sem ég hélt að væri í Skotlandi. Eftir að hafa hlaupið í hálftíma tók ég af mér heyrnartólin og fannst allt eitthvað skrýtið þangað til ég fattaði að ég var í Noregi en ekki Skotlandi. Það er kannski búið að vera aðeins of mikið um að vera.
Klukkan hvað ferðu á fætur? Mjög misjafnt. Stundum er ég að vinna langt fram á nætur þannig að það fer eftir því.
Leigirðu eða áttu? Ég hef aldrei leigt og keypti mína fyrstu íbúð 2011.
Hvaða bók er á náttborðinu? Ask Gary Vee eftir einn uppáhaldsfrumkvöðulinn minn, Gary Vaynerchuck.
Með hverjum, lífs eða liðnum, myndir þú vilja verja einni kvöldstund? Ég hugsa að ég myndi vilja eyða kvöldstund með Walt Disney og fá kennslustund í að elta draumana sína.
Hver er fyrsta endurminning þín? Fyrsta minningin mín er frá því þegar pabbi kom heim með fyrstu fiðluna mína.
Lífsmottó? „Get shit done“.
Uppáhaldsútvarpsmaður/stöð? Ég er algjör útvarpsflakkari og staldra aldrei lengi við á einni stöð þannig að það er ómögulegt að gera upp á milli.
Uppáhaldsmatur/drykkur? Pepsi Max eða Pax eins og það er kallað hjá mér. Ég drekk nánast þyngd mína af þessu á dag.
Uppáhaldstónlistarmaður/hljómsveit ? Svo margir. Þessa dagana er það Rag ‘n’ bones man, Max Richter og fleiri.
Uppáhaldskvikmynd/sjónvarpsþættir? Ég held að Game of Thrones hljóti að vera mjög ofarlega á listanum.
Uppáhaldsbók? Bókin Rich dad poor dad breytti mínum hugsunarhætti að mörgu leyti. Ég les helst bækur um fjárfestingar eða markaðsmál.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Í sögulegu samhengi á Íslandi held ég að það sé Vigdís Finnbogadóttir. Hún breytti sögunni og greiddi leiðina fyrir konur og fyrir það er ég þakklát.