fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fókus

Hvað gerðist 7. júlí?

Eftirminnilegir viðburðir í tónlistarsögunni

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 7. júlí 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmargir viðburðir gerast í tónlistarsögunni alla daga, sumt þó eftirminnilegra en annað. Hér eru nokkrir viðburðir sem gerðust í erlendri tónlistarsögu þann 7. júlí.

1940: Fæðingardagur Richard Starkey (Ringo Starr), trommara Bítlana, en hann er fæddur í Liverpool Bretlandi og fagnar því 77 ára afmæli í dag. Ringo söng eitt lag á flestum plötum Bítlana.

1957: Elvis Presley nær fyrsta toppsæti sínu í Bretlandi með laginu All Shook Up, tíunda lagið sem hann gaf út í Bretlandi. Lagið hélt toppsætinu í sjö vikur.

1969: George Harrison tók upp lagið Here Comes the Sun með tveimur öðrum Bítla meðlimum, Paul McCartney og Ringo Starr, í Abbey Road stúdíóinu í London. John Lennon var fjarverandi, að ná sér eftir bílsslys sem hann lenti í í Skotlandi.

1971: Hinn 26 ára gamli tónlistarmaður Bjorn Ulvaeus og hin 21 árs gamla Agnetha Faltskog giftu sig í Verum í Svíþjóð. Um 3000 aðdáendur ABBA mættu á svæðið og í kaosinu í kjölfarið steig hestur lögreglunnar á fót brúðarinnar, sem særðist lítillega.

1984: Bruce Springsteen náði fyrsta sæti bandaríska plötulistans með Born In the USA. Platan var í samtals 139 vikur á listanum. Platan er einnig ein af aðeins þremur plötum sem inniheldur sjö lög sem náð hafa á topp tíu listann í Bandaríkjunum, hinar eru Thriller plata Michael Jackson og Rhytm Nation plata Janet Jackson.

1984: Prince hóf fimm vikna setu í toppsæti bandaríska listans með laginu When Doves Cry. Lagið náði hæst í fjórða sæti á breska vinsældalistanum.

1999: Tilkynnt var að ísbílar í Bretlandi næðu frekar til sín viðskiptavinum með því að spila popplög fremur en hið hefðbundna ísbílastef. Vinsæl lög Spice Girls og Oasis voru þau fyrstu sem voru spiluð.

2000: Eiginkona Eminem, Kimberly Mathers, var lögð inn á sjúkrahús eftir að hafa skorið sig á púls eftir tónleika hans á Up in Smoke túrnum í Detroit í Bandaríkjunum. Sama dag náði Eminem toppsætinu í Bretlandi með laginu The Real Slim Shady´, lagið komst í fjórða sæti á lista í Bandaríkjunum.

2003: Fyrsta stúdíóplata Darkness, Permission To Land, kom út og sat í toppsæti breska listans í fjórar vikur. Fimm lög af plötunni voru gefin út á smáskífum, meðal annars I Believe in a Thing Called Love, sem er þeirra vinsælasta lag, en það náði öðru sæti breska listans. Hljómsveitin vann þrjú BRIT verðlaun í kjölfarið, fyrir bestu plötu, sem besta hljómsveit og sem besta rokksveitin.

2006: Syd Barrett lést, aðeins sextugur að aldri, vegna afleiðinga sykursýki. Söngvarinn, lagahöfundurinn og gítarleikarinn Barrett var einn af stofnmeðlimum Pink Floyd, en hann starfaði einungis í tónlistarbransanum í sjö ár, áður en hann lokaði sig frá umheiminum. Rekja má sjálfskipaða einangrun hans í 30 ár og andlega vanheilsu til misnotkunar á eiturlyfjum.

2007: Ozzy Osbourne var fyrsti listamaðurinn til að vera heiðraður með stjörnu á Walk of Fame götunni í Birmingham í Englandi, en hann er fæddur þar 1948. Skilyrði til að fá stjörnu þar er að vera frá Birmingham eða eiga einhverja tengingu við borgina. Osbourne sagði við þetta tilefni að stjarnan skipti hann mun meira máli, en einhver Hollywood verðlaun. Í dag eru stjörnurnar orðnar 35 talsins.

2007: The Live Earth tónleikarnir fóru fram víðsvegar um heimsálfuna, en þáverandi varaforseti Bandaríkjanna, Al Core, efndi til þeirra til að vekja athygli á loftslagsbreytingum. The Police slógu botninn í tónleika í New Jersey og Madonna í London, með lagi sem hún samdi sérstaklega af þessu tilefni. Á meðal annarra stórstjarna sem komu fram má nefna: Snow Patrol, Red Hot Chili Peppers, Genesis, The Beastie Boys, James Blunt, The Foo Fighters, Duran Duran, UB40, Snoop Dogg, Enrique Iglesias, Crowded House & Joss Stone.

2009: Fjölskylda og aðdáendur poppkonungsins Michael Jackson kvöddu hann hinstu kveðju við opna minningarathöfn í Staple Center í Los Angeles. Á meðal þeirra sem vottuðu honum virðingu voru tónlistarmennirnir Stevie Wonder, Lionel Richie og Mariah Carey. Berry Cordy yfirmaður Motown sem gerði samning við The Jackson Five, endaði minningarorð hans á: „Michael, þakka þér fyrir gleðina, þakka þér fyrir ástina. Þú munt verða í hjarta mér að eilífu.“

2015: Loftslagssérfræðingar frá fimm háskólum fundu út að í 163 lögum Bob Dylan af 542 lögum hans er minnst á veðurfar, sem setur hann í fyrsta sæti sem tónlistarmann sem fjallar um veður í textum sínum. Í öðru sæti eru Bítlarnir, en minnst er á veðrið á einn eða annan hátt í textum við í 48 af 308 lögum þeirra.

Heimild: thisdayinmusic.com

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Fyrir 3 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

„Það var mjög erfitt að horfa upp á ungan mann í dauðastríði“

Jón Arnar byrjaði skyndilega að missa hárið – Hefði gert þetta öðruvísi í dag

Fyrir 4 dögum

Læknir segir að þú getir sagt til um typpastærð karlmanns með því að horfa framan í hann

Prinsinn rýfur þögnina eftir að Katrín greindi frá krabbameinsgreiningunni