Ónefndur Twitter-notandi opnaði sig í vikunni um að krónísk graslykt væri í anddyri fjölbýlishússins þar sem hann býr. Það hringdi bjöllum hjá Berglindi Pétursdóttur sem er betur þekkt sem Berglind festival. Hún kannaðist við svipað vandamál frá heimsóknum sínum til alþingiskonunnar Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur.
Nokkrum skilaboðum seinna kom í ljós að um sama anddyri væri að ræða. „Ég hef kvartað yfir þessu á mörgum húsfundum. Þetta er víst föst lykt í plastinu í póstkössunum,“ sagði Áslaug Arna um hið alræmda anddyri.