fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Kristinn heldur í kærustuna með matnum

SOÐ-matreiðsluþættir myndlistarmannsins Kristins Guðmundssonar hafa vakið athygli

Björn Þorfinnsson
Sunnudaginn 16. júlí 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndlistarmaðurinn Kristinn Guðmundsson hefur vakið athygli undanfarna mánuði fyrir matreiðsluþættina SOÐ. Þættina tekur hann upp einn síns liðs á vinnustofu sinni í miðborg Brussel. Fyrstu þættirnir voru birtir á Youtube og hafði Kristinn að eigin sögn engar væntingar varðandi móttökur. Viðtökurnar hafa hins vegar verið frábærar og verkefnið undið verulega upp á sig. Nýlega festi Sjónvarp Símans kaup á fyrstu seríunni. Galdur þáttanna er sá að þeir fara í þveröfuga átt við aðra íslenska matreiðsluþætti þar sem gerilsneydd fágunin er allsráðandi og hugað er að hverju atriði við útlit þáttanna. Í Soði er allt á tjá og tundri, pottar og tól bera með sér áralanga notkun, eldað er á sjúskaðri ferðagashellu, uppskriftirnar eru ekki alltaf alveg réttar enda ekki að undra því oftar en ekki er Kristinn að elda þá í fyrsta skipti. Það er ekki síst sviðsframkoma Kristins og sjarmi sem gerir Soð-þættina að því sem þeir eru enda hafa þessir eiginleikar hans meðal annars landað honum hlutverkum í danssýningum þrátt fyrir að hann hafi aldrei lært dans. Kristinn er staddur hér á landi þessa dagana í fríi ásamt belgískri kærustu sinni og því greip blaðamaður tækifærið og skipulagði viðtal á kaffihúsi í borginni.

Eldar heilan lambaskrokk í heitum potti

Hið fyrsta sem kemur upp úr dúrnum er að sumarfrí Kristins er ekki meira afslappandi en svo að hann nýtir tímann til þess að taka upp nýja Soð-þætti með íslensku ívafi. Þá mun hann í vikunni bjóða vinum og aðdáendum þáttarins í Soð-boð, hið fyrsta sinnar tegundar. „Ég ætla að draga út að minnsta kosti þrjá dygga áhorfendur þáttarins og síðan mun ég bjóða vinum og vandamönnum. Ég elska að halda partí og þannig kom hugmyndin til að halda Soð-boð,“ segir Kristinn. Hann mun beita hinni vinsælu sous-vide matreiðsluaðferð í boðinu en með heldur stórkarlalegum hætti. „Ég ætla að elda heilan skrokk í heita pottinum hjá foreldrum mínum,“ segir Kristinn grafalvarlegur. Hann skellir svo upp úr og segist ætla að vera tilbúinn með hamborgara á hliðarlínunni ef hin metnaðarfulla matseld fer út um þúfur.

Í vikunni bauð Kristinn í SOÐ-boð og eldaði heilan lambaskrokk með svokallaðri sous-vide aðferð í heitum potti foreldra sinna.
Óvenjulegur pottur Í vikunni bauð Kristinn í SOÐ-boð og eldaði heilan lambaskrokk með svokallaðri sous-vide aðferð í heitum potti foreldra sinna.

Fann sig ekki í skóla

Kristinn er alinn upp í Keflavík og snemma í samtalinu kemur í ljós að hann ber íslensku skólakerfi ekki vel söguna. „Ég fann mig aldrei í skólanum. Ég hef mestan áhuga á einhvers konar sköpun og fór alveg á mis við það í skólakerfinu. Afleiðingin var sú að ég hafði ekki hugmynd um hvað ég ætlaði að verða,“ segir Kristinn. Að loknu grunnskólanámi skráði hann sig í ljósmyndanám í Danmörku en segja má að þaðan hafi honum verið ýtt í myndlistarnám í Hollandi, við Gerrit Rietveld-akademíuna í Amsterdam. Þaðan útskrifaðist hann með BFA árið 2012 og hélt leið sinni áfram í meistaranám við Dutch Art Institute. „Ég byrjaði í deild sem kenndi listsköpun með mynd og hljóði. Það var gott enda kann ég ekki að teikna,“ segir Kristinn. Hann segir að mikið frelsi hafi einkennt hans deild í skólanum sem hentaði honum afar vel. „Mér finnst gaman að leika mér og prófa sem flest. Ég fékk rými til þess í Hollandi og lærði helling af því,“ segir Kristinn.

Strax á fyrsta degi kynntist hann Austurríkismanninum Peter Sattler og náðu þeir vel saman. „Við urðum strax góðir vinir og höfum síðan unnið saman að margs konar listsköpun eftir að náminu lauk. Vináttan hefur einmitt verið okkur mikill innblástur,“ segir Kristinn. Hann og Peter hafa unnið að gjörningum, myndbandaverkum, skúlptúrum, prenti og innsetningum. „Við líkjum oft listsköpun okkar við tré. Við byrjum í rótunum, með einhverja tiltekna hugmynd, og vinnum okkur síðan upp í greinarnar. Þar fer hugmyndavinnan oft í allar áttir eins og greinar trésins. Síðan grisjum við tréð þannig að það standi nánast bert eftir og þá getum við metið hvað eftir stendur og hvers konar verk við erum með í höndunum,“ segir Kristinn.

Mjúk líkamsbygging á danssviði

Kristinn er ekki einhamur þegar kemur að listsköpun því hann á sinn sess í íslenska danshópnum Marble Crowd. Það er athyglisvert í ljósi þess að hann hefur aldrei lært dans af neinu viti. „Það kom þannig til að boðið var upp á dansnámskeið í skólanum mínum. Ég fékk leyfi til þess að sækja það þrátt fyrir að það hafi verið ætlað nemendum á öðru ári en ég sótti. Sú sem hélt námskeiðið heitir Alexandra Bechzetsis. Hún sá eitthvað í mér, fékk mig í nokkur verk og þannig kynntist ég Sögu Sigurðardóttir, sem er þó ekki ljósmyndarinn,“ segir Kristinn og kímir. Hann hefur dansað í mörgum verkum Sögu auk þess sem hann fór með hlutverk í dansýningunni Kviku eftir Katrínu Gunnarsdóttur.

Rétt er að grípa niður í stórkostlegan dóm gagnrýnandans Sesselju G. Magnúsdóttur um Kviku sem birtist á Hugrás, vefriti hugvísindasviðs Háskóla Íslands. „Kristinn hafði aftur á móti ekki mjög sterka líkamsbeitingu og stakk því í stúf hreyfilega séð í þeim hlutum verksins sem kröfðust líkamlegrar nákvæmni. Líkamsbygging hans er líka mýkri en venjulega sést á danssviðinu sem einnig vakti athygli,“ sagði Sesselja en hrósaði þó Kristni fyrir orkuna sem hann gefur af sér á sviðinu. Kristinn hlær dátt þegar dómurinn er lesinn upp. „Ég hef náttúrlega aldrei æft dans og kann því ekki á talningar eða neitt slíkt. Ég kann hins vegar alveg að hreyfa mig, hef það úr körfuboltanum í Keflavík og er með rýmisskilning. Ég fer þetta allt á tilfinningunni,“ segir Kristinn.

Hann segist vonast eftir því að vera hluti af danshópnum um ókomna tíð: „Ég elska þetta fólk og að vinna með því. Það er afar krefjandi en stórkostlega skemmtilegt. Það fá allir að varpa hugmyndum fram, sama hversu vitlausar þær eru, og svo vinnur hópurinn úr þeim í sameiningu,“ segir hann.

Heldur í kærustuna með matnum

Hugmyndina að matreiðsluþáttunum SOÐ fékk Kristinn fyrir rúmu ári en ákvað að kýla á nokkra þætti á vinnustofu sinni. Hann hefur enga menntun sem matreiðslumaður en hefur þó unnið sem slíkur á nokkrum stöðum og segist oft heyra að hann sé góður kokkur. „Ég byrjaði að vinna á Pizza 67 í Keflavík sem unglingur. Ég réð mig sem sendil en þegar ég mætti á fyrstu vakt var ég beðinn um að baka. Ég lærði mikið á því, ekki síst um samspil hráefna,“ segir Kristinn.

Þá hefur hann unnið á veitingastað í Brussel auk þess að hann tók að sér að elda tvisvar í viku í mötuneyti nemenda í skólanum sínum í Amsterdam. „Ég heyri reglulega að maturinn minn sé góður. Ég held til dæmis að það sé eina ástæðan fyrir því að ég held í kærustuna mína,“ segir Kristinn léttur. Hann segir að hugmyndin að matreiðsluþáttunum SOÐ hafi einfaldlega sprottið upp af áhuga hans á matreiðslu og reynslu hans af vinnu við myndavélar í listsköpun sinni. „Ég fékk þessa hugmynd og leyfði henni að meltast í rúmt ár þar til ég kýldi á þetta. Ég ákvað síðan að taka þættina upp á vinnustofunni minni, bæði af því að það var svo fótógenískt en líka af því að þannig gat ég stillt upp myndavélinni fyrir framan svæðið sem ég matreiði á en það hefði ekki verið hægt í eldhúsinu mínu,“ segir Kristinn.

Þá hefur vakið athygli að Kristinn er ekki alltaf vel búinn öllum tækjum og tólum en reddar sér alltaf. Meðal annars notar hann borvél við að hræra í sósum. „Að einhverju leyti fannst mér myndrænt og skemmtilegt að fara óhefðbundnar leiðir en ástæðan er líka sú að mér finnst skemmtilegt að elda við frumstæðar aðstæður, til dæmis í útilegum, og þurfa að bjarga mér,“ segir Kristinn.

SOÐ-þættir Kristins eru teknir upp á vinnustofu hans í Brussel. Hann segir það heppilegt að lykt finnist ekki í gegnum sjónvarpið því ýmis efni sem hann notar í sinni listsköpun kitla ekki beint bragðlaukana.
Einbeittur SOÐ-þættir Kristins eru teknir upp á vinnustofu hans í Brussel. Hann segir það heppilegt að lykt finnist ekki í gegnum sjónvarpið því ýmis efni sem hann notar í sinni listsköpun kitla ekki beint bragðlaukana.

Mistök leið til að læra

Matreiðsluþættirnir SOÐ eru ekki síst einstakir vegna þeirrar staðreyndar að mistökin sem eiga sér stað eru ekki klippt burt heldur látin fljóta með. „Þannig lærði ég að elda. Mistök eru leið til þess að læra og reynsla mín er sú að það sé alltaf hægt að bjarga sér. Það sem kemur út er alltaf matur þótt hann sé misjafnlega góður,“ segir Kristinn og hlær.

Hann hefur einnig verið spurður að því hvort hann sé í karekter í þáttunum eða hvort þetta sé bara hann sjálfur: „Maður er alltaf í mismunandi karakter eftir aðstæðum. Núna er ég í viðtali við þig og hegða mér því öðruvísi en ef ég væri með vinum mínum. Ég er kannski aðeins ýktari útgáfa af sjálfum mér í SOÐI en ég held ég sé samt svona. Ég er klaufi, ég klúðra hlutum en er óhræddur við að viðurkenna það og leyfa hlutunum að flæða,“ segir Kristinn.

Þáttur í hverri viku

Talsvert álag hefur verið á Kristni síðan þættirnir hófu göngu sína í byrjun árs enda koma þeir alltaf út á fimmtudögum í hverri viku. „Ég byrjaði á því að taka upp 5-6 þætti í byrjun janúar. Ég var á leiðinni til Hamborgar til þess að dansa í verki þar í nokkrar vikur og á meðan ég var þar þá dansaði ég á daginn en klippti á kvöldinn. Ég hef síðan haldið óslitið áfram að birta þátt í hverri viku og það er talsvert álag með fram heimilislífinu og annarri vinnu. Ég hef aldrei klúðrað því að gefa út þátt en ég hef af illri nauðsyn stundum búið til þætti í beinni útsendingu sem voru að einhverju leyti skítaredding en gáfu þáttunum líka aðra vídd. Það er ný reynsla fyrir mig því að nánast öll mín listsköpun og vinna hefur verið með hópum sem hentar mér afar vel. Ég þrífst í raun og veru á því. Í SOÐI var ég til að byrja með einn en smátt og smátt hafa áhorfendur farið að taka þátt með athugasemdum og uppástungum. Þetta er því að þróast út í eins konar hópvinnu sem mér finnst mjög skemmtilegt,“ segir hann.

Hann er afar ánægður og þakklátur fyrir vinsældir þáttarins. „Ég hef fengið mikil viðbrögð við þáttunum. Það var afar ánægjulegt að Sjónvarp Símans skyldi kaupa fyrstu þáttaröðina sem gaf mér aðeins rými til þess að anda. Í kjölfarið hafa ýmis fyrirtæki sett sig í samband við mig varðandi hugsanlegt samstarf og það er ýmislegt spennandi í pípunum,“ segir Kristinn. Eins og áður segir þá er hann að taka upp nýja þætti á Íslandi, úti í sveit. „Þeir þættir koma inn eftir nokkrar vikur og verða með íslensku ívafi. Ég held út í sveit, meðal annars í Þórsmörk, og þetta er því algjört skítamix,“ segir Kristinn og hlær. Hann segist spenntur fyrir að elda og útfæra íslenskan mat með nýjum áherslum. „Mig langar til að prófa mig áfram með íslenskan mat eins og svið og slátur. Ég fór til Írans með mastersnáminu mínu og prófaði þar írönsku útgáfuna af sviðum. Það var ótrúlega bragðgott og fékk mig til að hugsa um það hve íslensk svið, þó góð séu, eru í raun bragðlaus. Það sama gildir um slátrið okkar sem er mjög bragð- og áferðarlaust í samanburði við skoska haggisið sem er frábær matur,“ segir Kristinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Í gær

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“