Steini í Svissinum er áhugamaður um fornbíla
Aðalsteinn Ásgeirsson, eða Steini í Svissinum eins og hann er oftast nefndur, er einn helsti áhugamaður um fornbíla á landinu. Hann gerir upp fornbíla, er meðlimur í bæði Cadillac og Cruiserklúbbnum, auk þess að vera einn stofnenda fyrrnefnda klúbbsins og hefur keyrt Route 66 á Cadillac.
„Fyrsti fornbíllinn sem ég gerði upp var Cadillac Eldorado árgerð 1968 og ég á hann ennþá,“ segir Steini. Sá bíll er einn af fjórum sem Steini á og sá fimmti er að bætast í safnið, en Steini er núna að gera upp AMC Pacer árgerð 1978. Bílarnir eru þó ekki geymdir á safni, heldur er Steini með þá hér og þar og keyrir þá alla reglulega. „Þeir eru allir eins og nýir.“
Steini segir marga fornbíla til á landinu og út um allt land, sumir á söfnum en aðrir sem eru bara geymdir í bílskúrum eða geymslum, sjaldan keyrðir og í raun aðeins eigandanum til ánægju. „Eigandinn í raun bara labbar út í bílskúr og brosir.“
Steini er félagi í bæði Cruiser- og Cadillacklúbbnum og einn stofnenda þess síðarnefnda, hann er þó ekki lengur í stjórn og segist ekki hafa tíma til þess.
„Cadillacklúbburinn var stofnaður í tilefni af því að við keyrðum Route 66 á Cadillac og þá var sniðugt að vera í ameríska Cadillac klúbbnum og fá þjónustu frá klúbbnum í þessari ferð,“ segir Steini. Þeir voru fimm félagarnir sem keyrðu, rithöfundarnir Einar Kárason og Ólafur Gunnarsson, Jóhann Páll Valdimarsson, fyrrum eigandi Forlagsins, og Sveinn Magnús Sveinsson, kvikmyndagerðarmaður. Ferðalagið var gefið út bæði í bók og kvikmynd. Bókin Úti að aka: á reykspúandi kadilakk yfir Ameríku kom út árið 2006. Samnefnd heimildarmynd var svo sýnd árið 2016.
„Það er fólk á öllum aldri og af báðum kynjum í klúbbnum og krakkar hafa mikinn áhuga,“ segir Steini. „Bílasportið almennt er mest stundaða hobbý í heimi. Það er líka geysimikill iðnaður í kringum þetta. Heilu verksmiðjurnar erlendis sem eru að endursmíða bílana og farið að framleiða mikið af varahlutum í þá. Í dag getur þú endurbyggt bíl með nýjum varahlutum.“
Þegar veður leyfir þá keyrir Cadillac klúbburinn um á þriðjudögum og Cruiser klúbburinn á fimmtudögum. Á 17. Júní og Menningarnótt keyrir Cadillac klúbburinn niður Laugaveg og bílunum er svo stillt upp við Hörpu, fyrir áhugasama til að skoða. „Síðan eru hinar ýmsu uppákomur í báðum klúbbum, svona eftir tilefni og áhuga.“
„Fornbílar eru svo falleg stykki, ég sé þá bara sem skúlptúra,“ segir Steini, en bíll þarf að vera 25 ára til að teljast fornbíll. Steini sjálfur er orðinn 71 árs og hefur gert upp fimm fornbíla. Hann segist gera fornbíla upp af því að það sé svo gaman, hann ætlar hins vegar ekki að gera upp þann sjötta. „Í þessu hobbýi þýðir ekkert að horfa í peninga, frekar en í mörgum öðrum hobbýum, það er ekkert að hafa upp úr þessu peningalega.“
Hinir og þessir fallegu fornbílar sem eru í eigu ýmissa aðila víðs vegar um landið.