fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Hvað gerðist 14. júlí?

Eftirminnilegir viðburðir í tónlistarsögunni

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 14. júlí 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmargir viðburðir gerast í tónlistarsögunni alla daga, sumt þó eftirminnilegra en annað. Hér eru nokkrir viðburðir sem gerðust í erlendri tónlistarsögu þann 14. júlí.

1945: Jim Cordon, einn eftirsóttasti trommari síns tíma, fæddist 14. júlí í Bandaríkjunum. Cordon samdi Layla með Eric Clapton og vann með tónlistarmönnum á borð við The Everly Brothers, George Harrison, John Lennon, The Carpenters, Frank Zappa og fleiri. Cordon, sem greindur var með geðklofa, hlaut 16 ára fangelsisdóm 1984 eftir að hafa myrt móður sína með því að slá hana ítrekað með hamri í höfuðið þann 3. júní 1983.

1967: David Bowie gaf út lagið Love You Till Tuesday, sem komst ekki inn á vinsældalista. Samnefnd kvikmynd Bowies var síðan sýnd 1969.

1979: Donna Summer náði þriðja laginu í 1. sæti breska listans með smellinum Bad Girls af samnefndri plötu, sem hóf jafnframt fimm vikna setu í 1. sæti plötulistans. Summer fékk innblástur að laginu eftir að aðstoðarkona hennar sagði að lögreglumaður hefði haft afskipti af henni þar sem hann taldi hana vera vændiskonu.

1982: Kvikmynd Pink Floyd, The Wall, var frumsýnd í The Empire á Leicester-torgi í London. Myndin tók inn 22 milljónir dollara á fyrsta árinu og vann til tvennra breskra verðlauna.

1986: Madonna var á toppi breska listans með Papa Don't Preach. Plata hennar True Blue sat einnig í fyrsta sæti plötulistans.

2009: Aðdáendur Michaels Jackson söfnuðust saman í O2-tónleikahöllinni í London, þar sem söngvarinn ætlaði að hefja fyrstu tónleika sína af alls 50. Mínútuþögn var haldin kl. 18.30 að staðartíma, á þeim tíma sem aðdáendum hefði verið hleypt inn í höllina.

Mynd: 2009 Danny Martindale

2015: Dánardómstjóri staðfesti að B.B. King hefði látist af náttúrulegum orsökum tengdum Alzheimersjúkdómi sem hann þjáðist af, en ekki myrtur. Tvær dætra hans höfðu sakað aðstoðarmenn Kings um að hafa átt sök á dauða hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla