fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Hollywood-stjörnur og húðflúr: Hvað tákna flúrin?

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 14. júlí 2017 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Húðflúr er vinsælt í dag sem aldrei fyrr og það eru flestir með minnsta kosti eitt. Hollywood-stjörnurnar eru þar engin undantekning og nýlega tók Elle saman nokkrar þeirra og merkinguna á bak við húðflúr þeirra.

Söngkonan er með nokkur flúr og þetta er til að minna hana og aðra á að hún er vegan.
Miley Cyrus Söngkonan er með nokkur flúr og þetta er til að minna hana og aðra á að hún er vegan.
Þetta er til að heiðra föður hennar, söngvarann Billy Ray Cyrus.
Miley Cyrus Þetta er til að heiðra föður hennar, söngvarann Billy Ray Cyrus.
Hún fékk sér fyrsta flúrið aðeins 17 ára, Just Breathe. Það er þó ekki til að minna hana á að anda inn og út, heldur til að heiðra minningu beggja afa hennar og Vanessu, vinkonu hennar, sem öll létust úr lungnakrabba. „Flúrið minnir mig á að taka engu sem sjálfsögðum hlut. Að anda, var eitthvað sem ekkert þeirra gat gert sjálft, sem er eitt af grundvallaratriðunum, Og ég setti flúrið nálægt hjartanu, af því að þar munu þau alltaf vera.“
Miley Cyrus Hún fékk sér fyrsta flúrið aðeins 17 ára, Just Breathe. Það er þó ekki til að minna hana á að anda inn og út, heldur til að heiðra minningu beggja afa hennar og Vanessu, vinkonu hennar, sem öll létust úr lungnakrabba. „Flúrið minnir mig á að taka engu sem sjálfsögðum hlut. Að anda, var eitthvað sem ekkert þeirra gat gert sjálft, sem er eitt af grundvallaratriðunum, Og ég setti flúrið nálægt hjartanu, af því að þar munu þau alltaf vera.“
Bieber fékk sér þessa ágætu áminningu; Betri 70 ára og útskýrði flúrið þannig: „Ég lít til baka á hvað ég hef gert í lífinu, mistök, óöryggi og þrátt fyrir að mér finnist ég hafa eytt heilmiklum tíma í vitleysu, þá langar mig að verða betri. Ég ætla að vinna að því hvern dag að verða betri 70 ára.“ Flúrið er mantra undir áhrifum frá presti Biebers, sem minnir á að hafa endalokin í huga.
Justin Bieber Bieber fékk sér þessa ágætu áminningu; Betri 70 ára og útskýrði flúrið þannig: „Ég lít til baka á hvað ég hef gert í lífinu, mistök, óöryggi og þrátt fyrir að mér finnist ég hafa eytt heilmiklum tíma í vitleysu, þá langar mig að verða betri. Ég ætla að vinna að því hvern dag að verða betri 70 ára.“ Flúrið er mantra undir áhrifum frá presti Biebers, sem minnir á að hafa endalokin í huga.
Eitt af mörgum flúrum söngkonunnar er fæðingarár hennar.
Rihanna Eitt af mörgum flúrum söngkonunnar er fæðingarár hennar.
Leikkonan er alsett flúrum, þetta sýnir hnit fæðingarstaða allra barna hennar og fæðingarstaður fyrrum eiginmannsins Brad Pitt er þarna líka.
Angelina Jolie Leikkonan er alsett flúrum, þetta sýnir hnit fæðingarstaða allra barna hennar og fæðingarstaður fyrrum eiginmannsins Brad Pitt er þarna líka.
Alls konar bókstafir eru vinsæl flúr og leikkonan, fyrirsætan er með upphafsstafi sína, Cara Jocelyn Delevingne, á sér.
Cara Delevingne Alls konar bókstafir eru vinsæl flúr og leikkonan, fyrirsætan er með upphafsstafi sína, Cara Jocelyn Delevingne, á sér.
Söngkonan er með tilvitnun á þýsku úr Letters to a Young Poet eftir Rainer Maria Rilke, á upphandleggnum, auk dagsetningarinnar 12/18/1974, sem er fæðingardagur frænku hennar sem lést áður en Gaga fæddist, en sem Gaga segist hafa sterka tengingu við.
Lady Gaga Söngkonan er með tilvitnun á þýsku úr Letters to a Young Poet eftir Rainer Maria Rilke, á upphandleggnum, auk dagsetningarinnar 12/18/1974, sem er fæðingardagur frænku hennar sem lést áður en Gaga fæddist, en sem Gaga segist hafa sterka tengingu við.
Leikkonan fékk sér fiðrildi á hálsinn og segir að viku áður en hún fæddist hafi fiðrildi sest á maga móður hennar og þannig fékk hún nafnið sitt, því Vanessa þýðir fiðrildi.
Vanessa Hudgens Leikkonan fékk sér fiðrildi á hálsinn og segir að viku áður en hún fæddist hafi fiðrildi sest á maga móður hennar og þannig fékk hún nafnið sitt, því Vanessa þýðir fiðrildi.
Flúr leikkonunnar Emmu Stone sýnir sterka tengingu hennar við móður hennar og bítilinn Paul McCartney. Til að fagna því að móðir hennar var úrskurðuð krabbameinslaus fengu þær sér eins flúr með vísan í uppáhalds þeirra, Blackbird eftir Bítlana, flúrið hannaði McCartney sjálfur. Stone skrifaði bréf til hans og bað um mynd af fuglafótum sem hún ætlaði að gera að flúri og hann teiknaði þessa mynd og sendi til baka.
Emma Stone Flúr leikkonunnar Emmu Stone sýnir sterka tengingu hennar við móður hennar og bítilinn Paul McCartney. Til að fagna því að móðir hennar var úrskurðuð krabbameinslaus fengu þær sér eins flúr með vísan í uppáhalds þeirra, Blackbird eftir Bítlana, flúrið hannaði McCartney sjálfur. Stone skrifaði bréf til hans og bað um mynd af fuglafótum sem hún ætlaði að gera að flúri og hann teiknaði þessa mynd og sendi til baka.
Nýjasta flúr söngkonunnar er á arabísku og þýðir einfaldlega „elskaðu sjálfa þig fyrst.“
Selena Gomez Nýjasta flúr söngkonunnar er á arabísku og þýðir einfaldlega „elskaðu sjálfa þig fyrst.“
Jenner fékk sér líklega minnsta mögulega flúrið, einn hvítan punkt. Samkvæmt flúraranum JonBoy „það eru litlu hlutirnir sem skipta hana máli. Og hún valdi hvíta litinn svo það væri ekki áberandi við fyrirsætustörfin og svoleiðis.“
Kendall Jenner Jenner fékk sér líklega minnsta mögulega flúrið, einn hvítan punkt. Samkvæmt flúraranum JonBoy „það eru litlu hlutirnir sem skipta hana máli. Og hún valdi hvíta litinn svo það væri ekki áberandi við fyrirsætustörfin og svoleiðis.“
Söngvarinn fékk sér nýlega fjögur flúr sem öll hafa merkingu. Eitt þeirra, sem er á baugsfingri vinstri handar, táknar jafnrétti og segir Smith það skýra sig sjálft. „Það sýnir afstöðu mína til hjónabands samkynhneigðra og jafnrétti fyrir okkur öll,“ en söngvarinn er samkynhneigður.
Sam Smith Söngvarinn fékk sér nýlega fjögur flúr sem öll hafa merkingu. Eitt þeirra, sem er á baugsfingri vinstri handar, táknar jafnrétti og segir Smith það skýra sig sjálft. „Það sýnir afstöðu mína til hjónabands samkynhneigðra og jafnrétti fyrir okkur öll,“ en söngvarinn er samkynhneigður.
Sú yngsta í Kardashian klaninu fékk sér flúrið sanity á mjöðmina, líklega veitir ekki af góðri geðheilsu í fjölskyldu hennar.
Kylie Jenner Sú yngsta í Kardashian klaninu fékk sér flúrið sanity á mjöðmina, líklega veitir ekki af góðri geðheilsu í fjölskyldu hennar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“