fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Tónlistarhátíðin Secret Solstice

Fjölbreytt tónlistar- og mannlífsflóra

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 25. júní 2017 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarhátíðin Secret Solstice fór fram í Laugardalnum helgina 15.–18. júní og var þetta í fjórða sinn sem hátíðin er haldin. Þar sem hátíðin er ung að árum er hún enn að læra, bæði á tónlistargesti og umhverfið, veðrið er víst ekkert hægt að tjónka við. En hátíðin var stórskemmtileg og fjölbreytt og mátti finna eitthvað við að vera frá degi fram á nótt, allt eftir áhuga og úthaldi hvers og eins. Tónlistaratriði voru bæði innlend og erlend, stór og þekkt nöfn og nýgræðingar í bland.

Hér fer Kristján Guðjónsson yfir hátíðina í ár, en hér má sjá fjölbreyttar myndir frá mannlífsflóru hátíðarinnar.

Blaðamaður Birtu hitti Manu Bennett, sem þekktur er sem Crixus í sjónvarpsþáttunum Spartacus, og vini hans.

Skylmingaþrællinn Blaðamaður Birtu hitti Manu Bennett, sem þekktur er sem Crixus í sjónvarpsþáttunum Spartacus, og vini hans.

Mynd: Mummi Lú
Söng- og leikkonan Bryndís Ásmundsdóttir, sem er Tina Turner Íslands, og Franz Gunnarsson, sem kom fram á sunnudag. Franz er maðurinn á bak við Paunkholm, en hann er þekktur sem meðlimur Ensími og Dr. Spock.

Tina og Paunkholm Söng- og leikkonan Bryndís Ásmundsdóttir, sem er Tina Turner Íslands, og Franz Gunnarsson, sem kom fram á sunnudag. Franz er maðurinn á bak við Paunkholm, en hann er þekktur sem meðlimur Ensími og Dr. Spock.

Mynd: Mummi Lú
Ólöf Erla Einarsdóttir, Silli Geirdal, bassaleikari Dimmu, og Ísgerður Gunnardóttir sem sér um Krakka RÚV.

Dimmudrengur og dömurnar Ólöf Erla Einarsdóttir, Silli Geirdal, bassaleikari Dimmu, og Ísgerður Gunnardóttir sem sér um Krakka RÚV.

Mynd: Mummi Lú
Kærustuparið Elias Shamsudin bardagakappi og Anna Sveinborg Einarsdóttir.

Bláklædd í bleytunni Kærustuparið Elias Shamsudin bardagakappi og Anna Sveinborg Einarsdóttir.

Mynd: Mummi Lú
Jóel Bjarni, 14 ára, kom og kynnti fatamerki sitt Coldest. Í lok helgarinnar mátti sjá fjölda hátíðargesta í fötum frá honum. Móðir hans, Marlín Birna, er að sjálfsögðu klædd í Coldest, sem og Óliver, vinur þeirra.

Coldest sló í gegn Jóel Bjarni, 14 ára, kom og kynnti fatamerki sitt Coldest. Í lok helgarinnar mátti sjá fjölda hátíðargesta í fötum frá honum. Móðir hans, Marlín Birna, er að sjálfsögðu klædd í Coldest, sem og Óliver, vinur þeirra.

Mynd: Mummi Lú
Einn skemmtilegasti útvarpsmaður landsins, Ólafur Páll Gunnarsson, og kona hans, Stella María Arinbjargardóttir, tóku soninn Sturlaug Hrafn með og barnabarnið Stellu Maríu, sem er dóttir Tinnu Maríu Ólafsdóttur og Emmsjé Gauta.

Brosmild Einn skemmtilegasti útvarpsmaður landsins, Ólafur Páll Gunnarsson, og kona hans, Stella María Arinbjargardóttir, tóku soninn Sturlaug Hrafn með og barnabarnið Stellu Maríu, sem er dóttir Tinnu Maríu Ólafsdóttur og Emmsjé Gauta.

Mynd: Mummi Lú
Blaðamaður Birtu og fyrrverandi ritstýra og samstarfskona af Séð og Heyrt, Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir.

Séð og Heyrt samstarfskonur Blaðamaður Birtu og fyrrverandi ritstýra og samstarfskona af Séð og Heyrt, Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir.

Mynd: Mummi Lú
Brjánn Baldursson fékk smá „make-over“ undir tónum Tappa tíkarrass.

Útlitsbreyting Brjánn Baldursson fékk smá „make-over“ undir tónum Tappa tíkarrass.

Mynd: Mummi Lú
Fjölnir Geir Bragason er einn þekktasti flúrari landsins.

Flúr Fjölnir Fjölnir Geir Bragason er einn þekktasti flúrari landsins.

Mynd: Mummi Lú
Manu er einstaklega hrifinn af Íslandi og heimsækir það oft.

Íslandsvinur Manu er einstaklega hrifinn af Íslandi og heimsækir það oft.

Mynd: Mummi Lú
Söngvararnir og vinirnir Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Andri Ívarsson söngvari, uppistandari og meðlimur Föstudagslaganna og Mourning Coughy voru eldhressir að vanda.

Músíkalskir vinir Söngvararnir og vinirnir Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Andri Ívarsson söngvari, uppistandari og meðlimur Föstudagslaganna og Mourning Coughy voru eldhressir að vanda.

Mynd: Mummi Lú
Vinirnir Birgir Jónsson, trommuleikari Dimmu, og Stefán Magnússon, Herra Eistnaflug og framkvæmdastjóri Hard Rock, fylgdust með. Dimma kemur næst fram á Hard Rock á morgun, laugardaginn 24. júní, og svo á Eistnaflugi í júlí.

Rokkaðir strákar Vinirnir Birgir Jónsson, trommuleikari Dimmu, og Stefán Magnússon, Herra Eistnaflug og framkvæmdastjóri Hard Rock, fylgdust með. Dimma kemur næst fram á Hard Rock á morgun, laugardaginn 24. júní, og svo á Eistnaflugi í júlí.

Mynd: Mummi Lú
Steini Glimmer Þóruson, eigandi Steini Design, er alltaf skemmtilegur og flottur til fara. Hann á og rekur eigið tískumerki Steini Design.

Töff í eigin hönnun Steini Glimmer Þóruson, eigandi Steini Design, er alltaf skemmtilegur og flottur til fara. Hann á og rekur eigið tískumerki Steini Design.

Mynd: Mummi Lú
Parið Benjamín Náttmörður Árnason og Stefanía Svavarsdóttir eru bæði að gera góða hluti í tónlistinni.

Tónlistarpar Parið Benjamín Náttmörður Árnason og Stefanía Svavarsdóttir eru bæði að gera góða hluti í tónlistinni.

Mynd: Mummi Lú
Hlynur Björnsson Maple, Alexia Erla Hildur Hallgrímsdóttir og Ársól Eva, dóttir Hlyns, nutu hátíðarinnar vel klædd í litríkum regnfatnaði.

Litrík fjölskylda Hlynur Björnsson Maple, Alexia Erla Hildur Hallgrímsdóttir og Ársól Eva, dóttir Hlyns, nutu hátíðarinnar vel klædd í litríkum regnfatnaði.

Mynd: Mummi Lú
Hjónin Eyþóra Kristín Geirsdóttir lögfræðingur og Þráinn Steinsson tæknitröll Bylgjunnar, ásamt dótturinni, Kristín Leu. Eftir Secret Solstice brugðu hjónin sér svo á tónleika Depeche Mode á Ítalíu.

Músíkölsk fjölskylda Hjónin Eyþóra Kristín Geirsdóttir lögfræðingur og Þráinn Steinsson tæknitröll Bylgjunnar, ásamt dótturinni, Kristín Leu. Eftir Secret Solstice brugðu hjónin sér svo á tónleika Depeche Mode á Ítalíu.

Mynd: Mummi Lú
Aron Can og Jóel Bjarni flottir saman.
Can og Coldest Aron Can og Jóel Bjarni flottir saman.
Fjölmiðlakonan Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir alltaf hress og skemmtileg.
Flott fjölmiðlakona Fjölmiðlakonan Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir alltaf hress og skemmtileg.
Nýsjálenski leikarinn Manu Bennett, sem þekktur er fyrir hlutverk sitt sem Crixus í Spartacus sjónvarpsþáttunum, er mikill Íslandsvinur og mætti á Solstice. Hann kíkti meðal annars á Jóel Bjarna og Marlín, móður hans, í Coldest-básnum.
Crixus og Coldest Nýsjálenski leikarinn Manu Bennett, sem þekktur er fyrir hlutverk sitt sem Crixus í Spartacus sjónvarpsþáttunum, er mikill Íslandsvinur og mætti á Solstice. Hann kíkti meðal annars á Jóel Bjarna og Marlín, móður hans, í Coldest-básnum.
Svona var stemningin framan af, frábært veður og fjöldi fólks.

Fallegt í dalnum Svona var stemningin framan af, frábært veður og fjöldi fólks.

Mynd: Mummi Lú
Sumum finnst best að vera alveg fremst og missa ekki af neinu.

Framan við sviðið Sumum finnst best að vera alveg fremst og missa ekki af neinu.

Mynd: Mummi Lú
Það var jafnan fjöldi manns við Valhöll, aðalsvið Secret Solstice.

Margir við Valhöll Það var jafnan fjöldi manns við Valhöll, aðalsvið Secret Solstice.

Mynd: Mummi Lú
Hér taka tónleikagestir hraustlega undir í söng og hreyfingum.

Allir með Hér taka tónleikagestir hraustlega undir í söng og hreyfingum.

Mynd: Mummi Lú
Þegar leið á hátíðina ákvað sólin að taka „secret“ á þetta og lét sig hverfa. Það hafði samt engin áhrif á gleðina, fólk einfaldlega fjárfesti í regnhlífum, regnkápum og húfum.

Sólin í felum Þegar leið á hátíðina ákvað sólin að taka „secret“ á þetta og lét sig hverfa. Það hafði samt engin áhrif á gleðina, fólk einfaldlega fjárfesti í regnhlífum, regnkápum og húfum.

Mynd: Mummi Lú
Það þýðir ekkert að láta íslenska veðrið hafa áhrif á gleðina.

Blautt fjör Það þýðir ekkert að láta íslenska veðrið hafa áhrif á gleðina.

Mynd: Mummi Lú
Mynd: Mummi Lú
Það getur verið gott að vera með góðan stól með sér á tónlistarhátíð. Þessir ungu menn eru að færa sig milli sviða.

Leiðangur Það getur verið gott að vera með góðan stól með sér á tónlistarhátíð. Þessir ungu menn eru að færa sig milli sviða.

Mynd: Mummi Lú
Það þarf að fara í ýmsar stellingar til að ná réttri mynd.

Í stellingu Það þarf að fara í ýmsar stellingar til að ná réttri mynd.

Mynd: Mummi Lú
Lögreglan stóð vaktina í dalnum alla helgina og stóð sig vel.

Á vakt Lögreglan stóð vaktina í dalnum alla helgina og stóð sig vel.

Mynd: Mummi Lú
Chaka Khan kom fram á fimmtudagskvöldinu og hún kann þetta alveg, enda hefur ferill hennar spannað fimm áratugi.

Fönkdrottningin Chaka Khan kom fram á fimmtudagskvöldinu og hún kann þetta alveg, enda hefur ferill hennar spannað fimm áratugi.

Mynd: Mummi Lú
Hinn breski Richard Ashcroft kom fram á föstudagskvöldinu.

Breskur rytmi Hinn breski Richard Ashcroft kom fram á föstudagskvöldinu.

Mynd: Mummi Lú
Richard Ashcroft og félagar náðu að koma fjöri í mannskapinn áður en Foo Fighters yfirtók sviðið.

Frábært fjör Richard Ashcroft og félagar náðu að koma fjöri í mannskapinn áður en Foo Fighters yfirtók sviðið.

Mynd: Mummi Lú
Dave Grohl, forsprakki Foo Fighters, var frábær á sviði, en hljómsveitin kom fram á föstudagskvöldinu.

Fantagóður á föstudagskvöldi Dave Grohl, forsprakki Foo Fighters, var frábær á sviði, en hljómsveitin kom fram á föstudagskvöldinu.

Mynd: Mummi Lú
Mynd: Mummi Lú
Mynd: Mummi Lú
Mynd: Mummi Lú
Dario Darnell er tónlistarmaðurinn á bak við Youngr, hann kom fram í Gimli á undan Aron Can.

Youngr Dario Darnell er tónlistarmaðurinn á bak við Youngr, hann kom fram í Gimli á undan Aron Can.

Mynd: Mummi Lú
Þrátt fyrir ungan aldur, bæði í árum og í tónlistinni, er Aron Can einn sá vinsælasti í dag.

Ungur og vinsæll Þrátt fyrir ungan aldur, bæði í árum og í tónlistinni, er Aron Can einn sá vinsælasti í dag.

Mynd: Mummi Lú
Aron Can náði vel til tónleikagesta, sem sungu og hoppuðu með.

Náði til fjöldans Aron Can náði vel til tónleikagesta, sem sungu og hoppuðu með.

Mynd: Mummi Lú
Víðir Björnsson en hljómborðsleikari kvintettsins Kiriyama Family.

Elektrópopp Víðir Björnsson en hljómborðsleikari kvintettsins Kiriyama Family.

Mynd: Mummi Lú
Karl M. Bjarnarson, söngvari Kiriyama Family, er greinilega orðinn aðdáandi Coldest-fatnaðar.

Flottur á sviði Karl M. Bjarnarson, söngvari Kiriyama Family, er greinilega orðinn aðdáandi Coldest-fatnaðar.

Mynd: Mummi Lú
Eyþór Arnalds, söngvari Tappa tíkarrass, en sveitin á sér fjölda aðdáenda.

Tappi tíkarrass Eyþór Arnalds, söngvari Tappa tíkarrass, en sveitin á sér fjölda aðdáenda.

Mynd: Mummi Lú
Daði Freyr Lárusson, sem varð í öðru sæti Söngvakeppninnar í ár, var stórskemmtilegur á sviðinu og fylgdist fjöldi fólks með.

Skemmtilegur á sviði Daði Freyr Lárusson, sem varð í öðru sæti Söngvakeppninnar í ár, var stórskemmtilegur á sviðinu og fylgdist fjöldi fólks með.

Mynd: Mummi Lú
Dave Grohl, forsprakki Foo Fighters, brá á leik fyrir aðdáendur, ásamt Harper, dóttur sinni. Harper, sem er átta ára, steig á svið og barði taktinn í Queen-laginu We Will Rock You og áhorfendur tóku vel undir.

Brugðið á leik Dave Grohl, forsprakki Foo Fighters, brá á leik fyrir aðdáendur, ásamt Harper, dóttur sinni. Harper, sem er átta ára, steig á svið og barði taktinn í Queen-laginu We Will Rock You og áhorfendur tóku vel undir.

Mynd: Kristinn H. Guðnason
Mynd: Mummi Lú
Sólgleraugu eru staðalbúnaður á tónlistarhátíðum.

Staðalbúnaður Sólgleraugu eru staðalbúnaður á tónlistarhátíðum.

Mynd: Mummi Lú
Vinkonurnar Andrea Ísleifsdóttir og Donna Cruz sem tók þátt í Ungfrú Ísland í fyrra.

Flottar vinkonur Vinkonurnar Andrea Ísleifsdóttir og Donna Cruz sem tók þátt í Ungfrú Ísland í fyrra.

Mynd: Mummi Lú
Það skein gleði úr hverju andliti.

Brosmildir félagar Það skein gleði úr hverju andliti.

Mynd: Mummi Lú
Mynd: Mummi Lú
Mynd: Mummi Lú
Mynd: Mummi Lú
Vinkonurnar Dúna, Andrea og Embla Líf skemmtu sér vel um helgina. Dúna er systir GKR rappara sem kom fram á hátíðinni.

Flottar vinkonur Vinkonurnar Dúna, Andrea og Embla Líf skemmtu sér vel um helgina. Dúna er systir GKR rappara sem kom fram á hátíðinni.

Mynd: Mummi Lú
Stella Rósinkranz, danskennari og „choreographer“, og Guðrún Jóna Stefánsdóttir.

Glæsilegar vinkonur Stella Rósinkranz, danskennari og „choreographer“, og Guðrún Jóna Stefánsdóttir.

Mynd: Mummi Lú
Ýmislegt var í boði fyrir börn á hátíðinni, meðal annars að fá sér húðflúr.

Barnaflúr Ýmislegt var í boði fyrir börn á hátíðinni, meðal annars að fá sér húðflúr.

Mynd: Kristinn H. Guðnason
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar