fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Síðasta kvöldmáltíðin pítsa með ananas

Þórhallur Þórhallsson situr fyrir svörum

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 11. júní 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Uppistandarann og sprelligosann Þórhall Þórhallsson þekkja margir grínunnendur. Hann var valinn fyndnasti maður Íslands árið 2007 og hefur síðan þá starfað sem uppistandari, ásamt því að hafa verið með morgunþáttinn Magasín á FM957 og leikið í nokkrum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Þórhallur heldur úti vefsíðunni vitleysa.is ásamt félögum sínum og er duglegur að setja inn grín á samfélagsmiðla. Þórhall má finna á Facebook undir Þórhallur – uppistandari og á Snapchat toto1983. Þórhallur svarar spurningum vikunnar.

Fæddur og uppalinn? Ég er Reykjavíkurdrengur – ólst aðallega upp í Seljahverfinu þannig að ég er fyrrverandi villingur sem hékk út í sjoppu og hrækti á gangstéttina.

Mér finnst gaman að … búa til grín og fíflast. Hláturinn lengir lífið, nema að þú deyir úr hlátri það er að segja.

Síðasta kvöldmáltíðin? Pítsa með ananas. Bara til að pirra alla.

Brenndur eða grafinn? Henda mér í ofninn eins og Domino’s-pítsu og ég vil að það verði sent SMS á alla ættingja mína: „Þórhallur er kominn í ofninn, þið getið sótt hann eftir 15 mínútur.“

Hvað gerirðu milli kl. 17–19? Þá kem ég heim beint eftir vinnu og fer út með hundana mína áður en ég sofna og hrýt uppi í sófa eða bara fer beint í að hrjóta uppi í sófa.

Samfélagsmiðlar eða dagblöðin? Samfélagsmiðlar, þoli ekki svona pappírsrusl.

Hvað ertu með í vinstri vasanum? Ekki nokkurn skapaðan hlut.

Bjór eða hvítvín? Bjór allan daginn.

Hver stjórnar fjarstýringunni á þínu heimili? Hundarnir, þeir hafa allavega nagað tvær í gegn.

Hvernig var fyrsti kossinn? Fyrsti rómantíski kossinn eða bara fyrsti koss lífs míns frá mömmu sín? Báðir frekar vandræðalegir þar sem fæðingarlæknirinn var að fylgjast með.

Hver væri titill ævisögu þinnar? Kærulausi kvíðasjúklingurinn.

Hver er draumabíllinn? Það væri svona blár bíll með allavega fjórum dekkjum (veit ekkert um bíla).

Fyrsta starfið? Fyrir utan unglingavinnuna þar sem ég hraut í görðum hjá ókunnugu fólki þá var það málningarvinna eitt sumar þegar ég var sextán. Ég fékk aldrei útborgað og útskýringin sem yfirmaðurinn gaf stéttarfélaginu mínu var að hann væri með vírus í hausnum og gæti því ekki borgað laun.

Fallegasti staður á landinu? Einhvers staðar á Vestfjörðum. Fallegasta landslagið.

Hvaða ofurkraft værir þú til í að vera með? Væri til í að vera ofurhetja sem kallast „Ofurdúllan“ og ég myndi berjast við vondu kallana með því að kasta krúttsprengjum á þá.

Gist í fangaklefa? Nei, ekki verið svo heppinn.

Sturta eða bað? Sturtubað. Þá liggur maður í baðkeri og skrúfar frá sturtunni. Það er „gebbað“.

Húðflúr eða ekki? Já, tvö stykki í heild hvort á sínum upphandleggnum.

Hvaða leynda hæfileika hefur þú? Get blásið lofti út um augum, látið augun hristast, hermt eftir fílum og dansað cha cha cha.

Hvað fékk þig til að tárast síðast? Marley and Me, gjörsamlega hágrenjaði með hristandi höku og læti. Annars er ég farinn að grenja yfir öllu í dag. Held að það komi með aldrinum. Ég má ekki sjá auglýsingu um fólk sem þarf að vakna á nóttunni til að pissa án þess að tárast og hugsa „Þetta fólk fær aldrei nægan svefn“.

Fyrirmynd í lífinu? Ég myndi segja foreldrar mínir. Ég hef lært að koma vel fram við náungann og að maður fær ekki hlutina upp í hendurnar. Þú þarft að skapa þér þín tækifæri sjálfur.

Hvaða sögu segja foreldrar þínir endurtekið af þér? Ég hef oft fengið að heyra söguna af því þegar ég var bara ponsu kríli og við fjölskyldan vorum stödd í Munaðarnesinu í sumarbústað og ég fór eitthvað að klifra upp á borð og Halli frændi skammaði mig eitthvað svona létt. „Þú mátt ekki vera upp á borðinu, Þórhallur minn“ og ég sneri mér víst við og stappaði löppum og steytti hnefann að Halla frænda og sagði „Þú ræður ekkert yfir mér, ég má gera það sem ég vil fyrst að pabbi er ekki búinn að skamma mig.“ Þá litu allir orðlausir á þennan litla Hitler og sprungu svo bara út hlátri. Og svo fæ ég reyndar oft að heyra þegar ég reyndi að segja „Hemmi frændi“ þá sagði ég alltaf „Hemmi fjandi“. Og eftir það hét Hemmi, bróðir hans pabba, alltaf Hemmi fjandi hjá okkur.

Ertu með einhverja fóbíu? Veit ekki hvort það er fóbía eða ekki en ég þoli ekki hljóðið sem kemur þegar verið er að þrífa potta eða pönnur. Fæ alveg hrikalega mikinn hroll. Og get ekki snert bómull, alltof þurr eitthvað. Fæ meira að segja bara hroll núna við að segja þetta.

Hver er besta ákvörðun sem þú hefur tekið? Að fara upp á svið í fyrsta sinn og vera með uppistand. Var skíthræddur og hafði enga trú á mér. En ég uppskar hlátur og þá var ekki aftur snúið.

Furðulegasti matur sem þú hefur borðað? Ætli það séu ekki froskalappir og sniglar.

Hvað er neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í? Hef lent í svo mörgu neyðarlegu að ég er hættur að taka eftir því. Núna verð ég bara spenntur og hugsa „Hei, ég get notað þetta í uppistand“.

Klukkan hvað ferðu á fætur? Yfirleitt um 10, á morgnana sko.

Leigirðu eða áttu? Leigi.

Hvaða bók er á náttborðinu? Það er að sjálfsögðu sjálfsævisaga föður míns „Laddi – Þróunarsaga mannsins sem kom okkur til að hlæja.“ Mæli með henni (plögg plögg).

Með hverjum, lífs eða liðnum, myndir þú vilja verja einni kvöldstund? Úff, það er afar erfitt að velja. Það yrði einhver grínsnillingur. Charlie Chaplin … ég vel Charlie Chaplin.

Hver er fyrsta endurminning þín? Þegar ég slasaði mig þegar ég var 2–3 ára gamall og var næstum búinn að missa miðfingur hægri handar. Það hefði verið skrýtið líf að vera án „fokkjú“-puttans.

Lífsmottó? Þetta reddast.

Uppáhaldsútvarpsmaður/-stöð? Ég hlusta eiginlega bara ekkert á útvarp. Í denn var það samt Tvíhöfði og Ding Dong. Svo hlustaði maður á Radíusbræður seinna þegar það var komið á netið.

Uppáhaldsmatur/-drykkur? Ég er algjör pítsu/hamborgara/kók-kall. En ég elska líka gott nautakjöt og rauðvínsglas með.

Uppáhaldstónlistarmaður/-hljómsveit ? Þetta er held ég erfiðasta spurning allra tíma. Ég fæ bara valkvíða og er byrjaður að hnipra mig saman og tala tungum.

Uppáhaldskvikmynd/-sjónvarpsþættir? Aftur er valkvíðinn kominn á fulla ferð og ég er byrjaður að froðufella.

Uppáhaldsbók? „Laddi – Þróunarsaga mannsins sem kom okkur til að hlæja.“ Mæli með henni (plögg plögg).

Uppáhaldsstjórnmálamaður? Að spyrja um uppáhaldsstjórnmálamann er eins og að spyrja um uppáhaldskynsjúkdóm. Sem er klamedía að sjálfsögðu.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Facebooksíða

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki