Ísland ekki með í aðalkeppni Eurovision
Íslenska lagið, Paper í flutningi Svölu, komst ekki áfram í Eurovision. Þetta er þriðja árið í röð sem Ísland kemst ekki í úrslitin.
„Þannig fór um sjóferð þá,“ sagði kynnirinn Gísli Marteinn eftir að niðurstaðan var ljós. Á samfélagsmiðlun voru Íslendingar almennt sammála um að Svala hefði staðið sig mjög vel og flutningurinn verið óaðfinnanlegur. Það dugði þó ekki til og lagið hlaut ekki náð hjá þeim löndum sem kusu í kvöld.
Löndin tíu sem komust áfram voru Moldavía, Azerbaíjan, Grikkland, Svíþjóð, Portúgal, Pólland, Armenía, Ástralía, Kýpur og Belgía.