Gunnar Hrafn Jónsson, þingmaður Pírata, átti skemmtilegt samtal við starfsmann Alþingis á dögunum. „Svona samtal sem maður gengur frá og hugsar með sér að það ætti að vera skrifað niður einhvers staðar“, eins og hann orðaði það á Facebook-síðu sinni þar sem hann birti útskrift af samtalinu:
„-Heyrðu, þú ert í tölvudeildinni, ég er í veseni með Q (kú). Hafði verið frekar laus og týndist svo bara, ég er búinn að leita af mér allan grun í töskunni.
-Ha?
-Eða, sko, mig vantar bókstafinn kú, ekki skepnuna. Hann datt af fartölvunni. Ekki áttu svoleiðis á lager?
-Jújú, það er heldur minna mál en hitt, ég redda því. Q4U.“