Kristján Baldursson með tvöfalda afmælisveislu:
Kristján Baldursson, lögmaður og eigandi fasteignasölunnar Trausti, bauð nýlega vinum, vandamönnum og viðskiptavinum í sumarpartí, enda tilefnið ærið: fimm ára afmæli fasteignasölunnar og 43 ára afmæli Kristjáns. „Já, ef þetta var ekki dagurinn til að bjóða góðu fólki í gott partí, þá veit ég ekki hvenær hann er,“ segir Kristján.
Fjöldi fólks mætti til að samgleðjast Kristjáni af þessu tilefni og skemmtu sumir þeirra sér konunglega fram á nótt, enda frídagur daginn eftir.
Kristján hefur unnið í fasteignaviðskiptum síðan 2005 og vorið 2012 opnaði hann Trausta. „Til að byrja með vann ég hér einn, en í dag erum við ellefu starfsmenn, þar á meðal lögmenn, skrifstofustjóri og löggiltir fasteignasalar. Ég var það heppinn að fá inn gott fólk, eins og til dæmis Bergþóru Heiðu Guðmundsdóttur lögfræðing, sem kom hingað fljótlega eftir að ég byrjaði, og eins Guðbjörgu Sveinbjörnsdóttur sölustjóra, sem byrjaði fljótlega á eftir henni. Fyrirtæki eins og Traustinn stendur og fellur með starfsfólkinu og ég hef eins og áður segir verið mjög lánsamur með starfsfólk og hefur þetta góða fólk hjálpað mér að gera Trausta að því sem hann er í dag,“ segir Kristján ánægður. En í sumarlok mun einnig verða tilefni til að fagna því þá mun frumburður Kristjáns koma í heiminn, en Hrafnhildur Soffía Hrafnsdóttir, kærasta hans, á von á sér í ágúst.