Jónína Ómarsdóttir kennir unglingum að umgangast hunda:
Jónína, eða Ninna eins og hún er kölluð, kennir nemendum unglingadeildar Rimaskóla í Grafarvogi náttúrufræði. Fyrir þremur árum ákvað Ninna, sem er mikil hundakona og átti þá tvo hunda, að bjóða upp á valáfangann: Hundar sem gæludýr, fyrir nemendur í 8.–10. bekk. Áfanginn sló í gegn og dæmi eru um að nemendur hafi valið hann núna þrjú ár í röð.
„Þetta er ótrúlega skemmtilegt og gaman fyrir krakkana,“ segir Ninna, en það er engin skylda að eiga hund til að geta valið áfangann. Nemendurnir koma ýmist með eigin hunda eða fjölskyldunnar eða fá lánaða hunda. Þeir nemendur sem ekki mæta með hund ganga bara með ef svo ber undir. Markmiðið með valáfanganum er að nemendur læri að umgangast hunda og viti hvað beri helst að varast varðandi hundahald.
Það er einn tími á viku þar sem Ninna og nemendurnir fara í gönguferðir um hverfið með hunda í bandi og læra bæði nemendur og hundar þannig að umgangast stóran hóp af hundum. „Við förum mismunandi ferðir í hverfinu og höfum stundum fengið leyfi fyrir lengri gönguferðum,“ segir Ninna. „Hundarnir hafa líka gott af þessu, hundar hér á höfuðborgarsvæðinu eru ekki vanir að ganga í taumi með öðrum hundum og þegar tveir hundar mætast á göngu gelta þeir oft hvor á annan. Síðan eru nemendur að láta hundana leysa alls kyns þrautir og fara með þá í leiki,“ segir Ninna.
Námið er líka bóklegt og fræðir Ninna nemendur um eiginleika hunda, hvernig hirða eigi þá og hvað skuli varast.
„Ég er algjör hundakona sjálf,“ segir Ninna, ég átti tvo þegar ég byrjaði með valáfangann, en núna á ég bara hana Perlu, sem er níu ára og blanda af labrador og íslenskum.
Valáfanginn hefur verið mjög vinsæll og þess eru dæmi að nemendur hafi valið hann núna þrjú ár í röð, sem er ekkert mál að sögn Ninnu, þar sem hún er með ný verkefni á hverju ári. Einnig koma oft með í göngutúrana nemendur sem eru ekki skráðir í áfangann, en hafa einfaldlega áhuga á að rölta með, vera í samskiptum við hundana og hreyfa sig.
„Útiveran er svo holl og góð og mér finnst að allir ættu að eiga hunda, það hefur svo góð áhrif á geðheilsuna að fara út, anda að sér hreinu lofti á landinu okkar og hreyfa sig,“ segir Ninna. „Samskiptin við hunda eru ánægjuleg, það er alltaf einhver sem kemur fagnandi á móti þér þegar þú kemur heim.“
Valáfanginn hefur vakið athygli út fyrir skólann og hyggst Ninna gera meira úr honum í haust. „Það er sambærilegur áfangi í boði í Hagaskóla, einnig hafði kennari í Setbergsskóla samband og skólar á Kjalarnesi. Síðan var ég með gesta-snap hjá Komdu að kenna og það vakti athygli hjá Félagi ábyrgra hundaeigenda, sem birti grein um mig og áfangann, þannig að það væri gaman að meira yrði gert úr þessu í fleiri skólum.“