fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

„Fæ flestar hugmyndir á kvöldin og nóttunni“

Margrét Ósk (24) er upprennandi listamaður:

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 14. maí 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Listakonan Margrét Ósk Hildur Hallgrímsdóttir, eða Magga eins og hún er oftast kölluð, er ung og upprennandi listakona. Hún er sjálfmenntuð í myndlistinni og hefur haft nóg að gera í fjölbreyttum verkefnum. Hún leggur stund á nám í grafískri hönnun og nýjasta verkefnið er leyndarmál, sem verður afhjúpað í sumar.

„Mamma segir að ég hafi byrjað að teikna um leið og ég gat haldið á blýanti,“ segir Magga sem segir innblásturinn koma alls staðar að. Hún teiknar mest með penna eða blýanti, en málar einnig akrýlmyndir og veggmyndir. „Flestar hugmyndirnar fæ ég á kvöldin og nóttunni.“

Nýlega var Magga með myndirnar sínar á sýningunni Handverk og hönnun sem haldin var í Ráðhúsi Reykjavíkur. „Helgin gekk mjög vel, betur en ég bjóst við,“ segir Magga hógvær.

Sjö myndir eru komnar í þessari seríu og fylgdi sú fyrsta þeirra, Lundinn, sem póstkort með fyrsta Hús og híbýli í ár.
TVÍMYNDASERÍAN: Sjö myndir eru komnar í þessari seríu og fylgdi sú fyrsta þeirra, Lundinn, sem póstkort með fyrsta Hús og híbýli í ár.
Refurinn er nýjasta og sjöunda myndin í seríunni.
SÚ NÝJASTA: Refurinn er nýjasta og sjöunda myndin í seríunni.

Listaverk á hótelveggjum

Magga hefur málað myndir á veggi hótela og veitingastaða bæði í Reykjavík og á Siglufirði. „Fyrir tveimur og hálfu ári síðan fékk Helgi Tómas Sigurðsson, vinur minn og eigandi Frederiksen Ale House í Austurstræti, mig til að hanna og mála „lógó“ staðarins auk Íslandskorts og stórrar myndar sem eru á veggjum staðarins,“ segir Magga. Verkið vakti athygli og fleiri boð um að mála komu koll af kolli. Magga málaði Íslandskort á veggi veitingastaðarins Scandinavian sem er á Laugavegi, íslensku landvættina í eigin útfærslu í „renaissance“-stíl, landakort og íslenskt landslag á Residence hótelinu á Siglufirði og síðast miðbæjarkort í Kvosin hótel í Kirkjustræti.

Í lok árs 2016 málaði Magga kort af miðbænum sem prýðir veggi Kvosin hótel sem er á Kirkjutorgi. „Snorri Valsson rekstrarstjóri sá verkið mitt á Frederiksen og hringdi í mig.“
MAGGA OG MIÐBÆRINN: Í lok árs 2016 málaði Magga kort af miðbænum sem prýðir veggi Kvosin hótel sem er á Kirkjutorgi. „Snorri Valsson rekstrarstjóri sá verkið mitt á Frederiksen og hringdi í mig.“
 „Fyrir tveimur og hálfu ári síðan fékk Helgi Tómas Sigurðsson, vinur minn og eigandi Frederiksen Ale House í Austurstræti, mig til að hanna og mála lógó staðarins auk Íslandskorts og stórrar myndar sem eru á veggjum staðarins,“ segir Magga.
FYRSTA VEGGMYNDIN: „Fyrir tveimur og hálfu ári síðan fékk Helgi Tómas Sigurðsson, vinur minn og eigandi Frederiksen Ale House í Austurstræti, mig til að hanna og mála lógó staðarins auk Íslandskorts og stórrar myndar sem eru á veggjum staðarins,“ segir Magga.
Tvíburasystir Möggu, Alexia Erla Hildur, fór með henni á Siglufjörð. Systurnar eru bestu vinkonur og báðar einstaklega hæfileikaríkar, en Alexia vinnur hjá Sign og stefnir á nám í skartgripasmíði.
BESTU VINKONUR: Tvíburasystir Möggu, Alexia Erla Hildur, fór með henni á Siglufjörð. Systurnar eru bestu vinkonur og báðar einstaklega hæfileikaríkar, en Alexia vinnur hjá Sign og stefnir á nám í skartgripasmíði.

Hannar framtíðina

Magga vinnur núna að því að klára lokaverkefni fyrsta ársins í Listaháskólanum, en námið í grafískri hönnun er þrjú ár. „Einnig er ég að klára teikningar fyrir annað verkefni sem verður afhjúpað í sumar, auk þess sem ég verð að vinna í Hrím hönnunarhús,“ segir Magga, sem á framtíðina fyrir sér í listinni.

Facebooksíða

Magga er núna að vinna teikningar fyrir verkefni sem verður afhjúpað í sumar.
LEYNIVERKEFNI: Magga er núna að vinna teikningar fyrir verkefni sem verður afhjúpað í sumar.
Magga er með síðuna MOHH, teikningar og málverk á Facebook, og þar er hægt að panta myndir eftir hana. Hún er til dæmis með eigin útgáfu af stjörnumerkjunum.
STJÖRNUMERKIN TIL SÖLU: Magga er með síðuna MOHH, teikningar og málverk á Facebook, og þar er hægt að panta myndir eftir hana. Hún er til dæmis með eigin útgáfu af stjörnumerkjunum.
Magga hannaði lógó fyrir Alpha Gym.
FJÖLHÆF: Magga hannaði lógó fyrir Alpha Gym.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki