fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Gefandi að skapa grín handa fólki

Útskrifaðist úr viðskiptafræði og endaði sem grínisti í fullri vinnu – „Hægt að gera grín að öllu svo lengi sem það kemur frá góðum stað“

Auður Ösp
Föstudaginn 7. apríl 2017 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hlutirnir hafa einhvern veginn bara komið til mín í gegnum tíðina. Ég var aldrei verið með nein úthugsuð plön um hvað ég ætlaði að gera, nema ég vissi að mig langaði að gera eitthvað tengt sjónvarpi. Eitt leiddi af öðru og svo er ég hérna í dag,“ segir Björn Bragi Arnarsson, grínisti, sjónvarpsmaður og meðlimur uppistandshópsins Mið-Íslands. Sýningar hópsins hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár og þess eru engin merki að þær fari minnkandi. Húsfyllir hefur verið á síðustu 50 sýningum í Þjóðleikhúskjallaranum og er áhorfendahópurinn frá áramótum kominn yfir 10 þúsund.

„Við byrjum alltaf í janúar, og höfum gert síðustu ár, og keyrum sýninguna fram til vors. Við höfum verið með allt að fimm sýningar á viku. Þetta er svakaleg keyrsla á veturna og maður þarf að vera duglegur að taka sér frí inni á milli og nota sumarið til að kúpla sig út.“

Hann á fjölmarga fylgjendur á samfélagsmiðlum þar sem hann er iðinn við að birta ýmiss konar efni. Þannig hefur verið horft oftar en 1,5 milljón sinnum á nýlegan grínskets hans um íslenskt veður á Facebook, ekki eingöngu Íslendingar heldur fólk frá öllum heimshornum. Það er þó seint hægt að segja að framleiðslan hafi verið umfangsmikil en myndskeiðið tók Björn Bragi upp á símann sinn.

„Mér finnst mjög gaman að nýta þessa miðla, það er svo þægilegt að geta fengið hugmynd og hent henni þangað strax,“ segir hann og bætir við að það sé margfalt auðveldara að koma myndefni á framfæri nú, á tímum samfélagsmiðla. „Það geta allir fengið hugmynd, tekið upp og hent á netið. Grín þarf heldur ekki að vera mjög „pródúserað“. Ef hugmyndin er góð og skemmtileg, þá er það meira en nóg.“

„Það er meðal annars þaðan sem minn húmor kemur, svona súr og kaldhæðinn og svartur húmor.“
Kunni Fóstbræður utan að „Það er meðal annars þaðan sem minn húmor kemur, svona súr og kaldhæðinn og svartur húmor.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Heldur öllum hugmyndum til haga

Eins og margir aðrir sem fæddust um miðbik níunda áratugarins ólst Björn Bragi upp við að horfa á Fóstbræðraþættina á Stöð 2, að ógleymdum The Simpsons og þaðan sækir hann meðal annars innblástur í uppistandið.

„Ég var forfallinn aðdáandi Fóstbræðra, tók alla þættina upp á VHS-spólu og kunni þá utan að. Það er meðal annars þaðan sem minn húmor kemur, svona súr og kaldhæðinn og svartur húmor.“

Hann sækir innblástur alls staðar að. „Ég vandi mig mjög fljótt á að halda til haga öllum hugmyndum sem ég fæ. Ég er alltaf með símann á mér og skrifa þar niður hugmyndirnar og geymi líka allt vídeó og allar upptökur. Ég safna þessu öllu saman og vinn svo úr því öðru hverju,“ segir hann en gott grín fæðist sjaldan upp úr þurru. „Þetta byrjar meira þannig að þú skrifar hugmyndirnar og vinnur út frá þeim. Skrifar í kringum þær. Stundum getur geðveik hugmynd komið út frá ömurlegri hugmynd.“

Það er undantekningarlaust góð stemming á sýningum hópsins. „Það er líka oftast þannig að fólk er búið að gera sér ákveðna væntingar áður en það kemur, það er mætt til að hlæja. Þá myndast alltaf svo geggjuð orka.“

Ferill Björns Braga með Mið-Íslandi hófst haustið 2010 þegar hann tók að sér að vera kynnir hópsins en ekki leið á löngu þar til hann fór sjálfur að flytja uppistand. Hann segir skrítið að hugsa til þess að bráðum séu liðin sjö ár frá því hann steig fyrst á svið. „Það var visst adrenalínkikk að gera þetta í fyrsta skipti en ég man hvernig það var að fá viðbrögðin, heyra fólk hlæja og eftir á hugsaði ég bara: „Vá, ókei, ég vil gera meira af þessu.“

„Mér finnst að það sé hægt að gera grín að öllu svo lengi sem það kemur frá góðum stað og sé ekki  beinlínis meiðandi eða særandi gagnvart minni máttar.“
Ekki allir með sama húmorinn „Mér finnst að það sé hægt að gera grín að öllu svo lengi sem það kemur frá góðum stað og sé ekki beinlínis meiðandi eða særandi gagnvart minni máttar.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Óhætt er að segja að meðlimir Mið-Íslands séu mjög ólíkir persónuleikar og hver og einn með sinn stíl. Húmor Björns Braga þykir nokkuð kaldhæðinn, án þess þó að vera klúr eða subbulegur.

„Mér finnst að það sé hægt að gera grín að öllu svo lengi sem það kemur frá góðum stað og sé ekki beinlínis meiðandi eða særandi gagnvart minni máttar. En svo er fólk bara með svo misháan sársaukaþröskuld þegar kemur að húmor. Þó að ég sé að gera grín að einhverjum einstaklingi þá er ég ekki endilega að gera lítið úr viðkomandi. Ef ég er að gera grín að ofbeldi þá er ég ekki að mæla með því. Það þurfa ekki allir að fíla grínið en það þýðir samt ekki að það eigi ekki rétt á sér.

Við höfum líka haft það sem viðmið innan hópsins að því grófara sem efnið er því fyndnara þarf það að vera. Maður vill ekki vera grófur bara til að vera grófur. Það er svona auðvelda leiðin út.“

Björn Bragi hefur ekki fengið mörg helgarfrí undanfarin ár. Hann kvartar þó ekki. „Ég hætti á Stöð 2 árið 2013 og hef síðan þá verið í fullri vinnu við að vera með uppistand og grín auk þess að taka að mér einstaka sjónvarpsverkefni eins og til dæmis Gettu betur.“

Það vita ekki allir að Björn Bragi er menntaður viðskiptafræðingur. Hann hefur reyndar lítið starfað við fagið enda með mörg önnur járn í eldinum. „Mér gekk samt mjög vel í náminu í HR og ætlaði að fara í framhaldsnám í Barcelona. En svo bauðst mér að stýra Monitor tímaritinu á sínum tíma og síðan fór ég að gera sketsa og svo tók Stöð 2 við.“

 „Mér finnst einfaldlega alltaf jafn gaman þegar það er fullur salur af fólki sem er skellihlæjandi.“
Mun aldrei fá leiða á uppistandi „Mér finnst einfaldlega alltaf jafn gaman þegar það er fullur salur af fólki sem er skellihlæjandi.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Ætlar að leika meira

Það er ýmislegt í farvatninu hjá Birni Braga sem meðal annars tengist leiknu efni fyrir sjónvarp og net. Allt er það þó á frumstigi og því erfitt að greina nánar frá þeim verkefnum að svo stöddu. „Ég hef verið að fikra mig svona hægt og rólega í áttina að leiknu efni. Ég er afskaplega spenntur fyrir því að leika meira. Mér finnst líka mjög gaman að skrifa og langar að fara meira út í handritsskrif fyrir utan sviðið, hvort sem það er þáttagerð, vefþættir, sketsar eða eitthvað annað. Það er klárlega á planinu.“

Hann er ekki mikið fyrir að nota hið klisjukennda orð „gefandi“ þegar kemur að því lýsa því sem heillar við uppistandið. Það orð á samt einkar vel við. „Mér finnst einfaldlega alltaf jafn gaman þegar það er fullur salur af fólki sem er skellihlæjandi og svo fer það sátt heim og maður veit að maður er búinn skapa eitthvað eftirminnilegt handa því, eitthvað sem fólkið á eftir að tala um næstu daga. Þess vegna held ég að ég muni aldrei fá leiða á þessu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki