fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Mel B fær nálgunarbann á fyrrverandi eiginmann sinn

Segir Stephen hafa gert barnapíuna ófríska og ásakar hann um heimilisofbeldi

Kristín Clausen
Þriðjudaginn 4. apríl 2017 17:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum kryddpían, Mel B, sótti um skilnað frá eiginmanni sínum, Stephen Belafotne, í síðasta mánuði. Svo virðist sem skilnaðurinn eigi ekki eftir að ganga snurðulaust fyrir sig. Í gær kom Mel B fyrir dóm þar sem hún sótti um nálgunarbann gegn Stephen. Fyrir dómnum sagði Mel, meðal annars, að Stephen hefði beitt sig grófu ofbeldi, gert barnapíu þeirra hjóna ófríska og neytt sig til að stunda kynlíf með öðrum konum.

Dómari samþykkti nálgunarbannið sem þýðir að Stephen má hvorki koma nálægt Mel né börnunum hennar þremur.

Mel segir að Stephen hafi gert barnapíu þeirra hjóna ófríska. Í fyrstu hafi hann stungið upp á því að þau þrjú myndu búa saman og ala upp barnið. En að lokum borgaði hann barnapíunni 300 þúsund dollara fyrir að fara í fóstureyðingu. Þetta kemur fram í dómsgögnum.

Þá segir Mel að Stephen hafi beitt sig andlegu og líkamlegu ofbeldi í öll þau 10 ár sem þau voru saman. Mel segir að hann hafi alltaf verið afbrýðisamur út í sig og viljað stjórna henni, hvort sem er með orðum eða líkamlegu ofbeldi.

Mel og Stephen voru gift í 10 ár
Á meðan allt lék í lyndi Mel og Stephen voru gift í 10 ár

Mel segir frá því að Stepen hafi til að mynda beitt sig líkamlegu ofbeldi árið 2012, daginn áður en hún kom fram með Usher í X Factor þætti þar sem hún var dómari. Þá segir Mel að Stephen hafi beitt sig ofbeldi daginn áður en hún steig á svið með Kryddpíunum á lokaathöfn Ólympíuleikana í London sama ár.

Fyrir dómi sagði Mel einnig að hún hefði oft, síðstu ár, reynt að fara frá Stephen. Hann hafi hinsvegar hótað henni með ofbeldi og að eyðileggja líf hennar. Til dæmis með því að taka börnin frá henni og birta myndbönd sem sýna hana á grófan hátt í kynferðislegum athöfnum.

Stephen neitar þessum ásökunum og sagði í samtali við TMZ þegar þær voru bornar upp á hann að hann hefði aldrei heyrt um þetta áður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hver fer á Bessastaði? – Þetta eru makar forsetaframbjóðendanna

Hver fer á Bessastaði? – Þetta eru makar forsetaframbjóðendanna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan
Fókus
Fyrir 4 dögum

Aðdáendur Taylor Swift halda ekki vatni eftir nýjasta uppátæki hennar

Aðdáendur Taylor Swift halda ekki vatni eftir nýjasta uppátæki hennar