fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

„FRELSIÐ Í TÓNLISTINNI ER ÞAÐ SEM HEILLAR VIÐ BLÚSINN“

Þorsteinn G. Gunnarsson (56) býður á blúshátíð:

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 26. apríl 2017 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blúshátíð var haldin á Hilton um páskana. Hátíðin hefur vaxið með hverju ári og er vel sótt af blúsaðdáendum á öllum aldri, sem hlýða á íslenska og erlenda blúsara og skemmta sér með þeim fram á nótt.

Blús

Þorsteinn G. Gunnarsson er í stjórn Blúshátíðarinnar, sem alltaf er haldin í dymbilvikunni og hátíðin í ár er sú fjórtánda. „Við leggjum áherslu á tvennt, að breiða út blúsinn með því að fá þekkta og athyglisverða tónlistarmenn til okkar og að styðja við unglingastarfið í tónlistinni á Íslandi.“
Sú hefð hefur skapast á Músíktilraunum sem haldnar eru stuttu fyrir Blúshátíðina að þar er valið blúsaðasta band Músíktilraunina. „Það band setur síðan hátíðina með því að stíga fyrst á svið,“ segir Þorsteinn.

Hver sem er getur spilað eftir tónleika

Hátíðin er mjög vel sótt og segir Þorsteinn að það sé gaman að geta skipulagt tónlistarhátíð fyrir þennan aldurshóp, en flestir gesta eru á aldrinum 40–60 ára, þó að yngra fólk mæti líka. „Gestir eru mjög þakklátir og þegar tónleikum lýkur þá er klúbbur fyrir framan tónleikasalinn og þar er djammað frá því að tónleikum lýkur klukkan 23 og fram eftir nóttu. Og þar má hver sem áhuga hefur spila, og kemur fyrir að stóru og frægu gestirnir okkar, tónlistarmenn sem hafa fengið Grammy-verðlaun eru að skemmta sér þar með unga fólkinu sem er í háskóla og í tónlistarnámi.“
Þorsteinn segir að ástæðan fyrir því að Blúshátíð sé haldin á páskum sé sú að upphaflega hafi ekkert mátt gera á páskum og í raun hafi verið um að ræða leiðinlegustu viku ársins, hvað skemmtanahald varðar. „Síðan tók guðfaðir hátíðarinnar, Halldór Bragason, sem leiðir Vini Dóra, sig til og þeir byrjuðu að halda tónleika að kvöldi skírdags á Hótel Borg.

Kári, sonur hjónanna Sigurveigar Káradóttur, eiganda Matarkistunnar, og Egils Helgasonar fjölmiðlamanns, er einstaklega hæfileikaríkur. Kári er 15 ára og gerði sér lítið fyrir í Klúbbnum eftir tónleika og heillaði gesti hátíðarinnar.
KÁRI KANN ÞETTA Kári, sonur hjónanna Sigurveigar Káradóttur, eiganda Matarkistunnar, og Egils Helgasonar fjölmiðlamanns, er einstaklega hæfileikaríkur. Kári er 15 ára og gerði sér lítið fyrir í Klúbbnum eftir tónleika og heillaði gesti hátíðarinnar.

„Það sem er heillandi við blúsinn er í raun og veru frelsið sem býr í tónlistinni, spuninn og flugið sem listamenn taka gjarnan á sviðinu,“ segir Þorsteinn sem er heillaður af blús.

Andrea Gylfadóttir og hljómsveit hennar Blúsmenn Andreu kom fram á lokakvöldinu og setti kommuna yfir u-ið í velheppnaðri blúshátíð.
BLÚS MEÐ MÖNNUM Andrea Gylfadóttir og hljómsveit hennar Blúsmenn Andreu kom fram á lokakvöldinu og setti kommuna yfir u-ið í velheppnaðri blúshátíð.
Halldór Bragason sem jafnan er kallaður guðfaðir blústónlistarinnar hér á landi, er einnig listrænn stjórnandi Blúshátíðarinnar.
GUÐFAÐIRINN Halldór Bragason sem jafnan er kallaður guðfaðir blústónlistarinnar hér á landi, er einnig listrænn stjórnandi Blúshátíðarinnar.
Bandaríski blúsarinn Noah Wotherspoon, sem valinn var besti gítarleikarinn á International Blues Challenge árið 2015, var stórkostlegur á sviði ásamt The Blue Ice Band.
EINN SÁ BESTI Bandaríski blúsarinn Noah Wotherspoon, sem valinn var besti gítarleikarinn á International Blues Challenge árið 2015, var stórkostlegur á sviði ásamt The Blue Ice Band.
Hæfileikarnir ekki fjarri. Ung dóttir Davíðs Þór Jónssonar leikur sér á trommurnar stuttu fyrir tónleika ásamt föður sínum.
UNG NEMUR ELDRI TEMUR Hæfileikarnir ekki fjarri. Ung dóttir Davíðs Þór Jónssonar leikur sér á trommurnar stuttu fyrir tónleika ásamt föður sínum.
Guðmundur Pétursson er einn af færari gítarleikurum landsins og þótt víðar væri leitað.
GÍTARSNILLINGUR AF GUÐS NÁÐ Guðmundur Pétursson er einn af færari gítarleikurum landsins og þótt víðar væri leitað.
Óskar Logi Ágústsson, söngvari og gítarleikari The Vintage Caravan, var sem í leiðslu á sviðinu.
BLÚSFÍLINGUR Óskar Logi Ágústsson, söngvari og gítarleikari The Vintage Caravan, var sem í leiðslu á sviðinu.
Kristján Kristjánsson, sem best er þekktur sem KK, klikkaði ekki á sviði frekar en fyrri daginn. Strákurinn er með 'etta.
KK KLIKKAR ALDREI Kristján Kristjánsson, sem best er þekktur sem KK, klikkaði ekki á sviði frekar en fyrri daginn. Strákurinn er með 'etta.
Það fór vel á með sænska gítarleikaranum Göran Svenningsson, en hann hefur spilað blús frá unga aldri með helstu blúsmönnum Svíþjóðar og munnhörpuleikaranum Þorleifi Gauki Davíðssyni.
NORÐURLANDABLÚS Það fór vel á með sænska gítarleikaranum Göran Svenningsson, en hann hefur spilað blús frá unga aldri með helstu blúsmönnum Svíþjóðar og munnhörpuleikaranum Þorleifi Gauki Davíðssyni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hver fer á Bessastaði? – Þetta eru makar forsetaframbjóðendanna

Hver fer á Bessastaði? – Þetta eru makar forsetaframbjóðendanna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan
Fókus
Fyrir 4 dögum

Aðdáendur Taylor Swift halda ekki vatni eftir nýjasta uppátæki hennar

Aðdáendur Taylor Swift halda ekki vatni eftir nýjasta uppátæki hennar