fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

„Áttum von á einhverju miklu verra“

Ari Hermann Oddsson og Haukur Lúðvíksson hlupu nýverið maraþon í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu

Kristín Clausen
Föstudaginn 21. apríl 2017 06:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fólkið þarna var mjög indælt og ekki að sjá að það liði einhvern skort. Þvert á móti.“ Þetta segir maraþonhlauparinn Ari Hermann Odsson sem er nýkominn heim frá Norður-Kóreu þar sem hann hljóp, ásamt Hauki Lúðvíkssyni og Almari Erni Hilmarssyni, 42 kílómetra í Pyongyang-maraþoninu þann 9. apríl síðastliðinn. Ari Hermann og Haukur hittu blaðamann DV yfir hádegisverði í vikunni og ræddu upplifun sína af þessu umdeildasta alræðisríki veraldar.

Langt ferðalag

„Það var svo margt sem kom okkur skemmtilega á óvart. Við höfðum auðvitað ekki miklar væntingar, en að sama skapi áttum við von á einhverju miklu verra,“ segir Haukur, og Ari tekur í sama streng. „Það kom á óvart hvað það var auðvelt að komast inn í landið. Þetta var minna mál en að komast inn í Bandaríkin.“

Þetta á þó ekki við um umstangið sem fylgdi því að fá vegabréfsáritun sem og ferðalagið sjálft. Ari, Haukur og Almar fengu ekki endanlega á hreint fyrr en 10 dögum fyrir brottför að þeir væru komnir með fullnægjandi vegabréfsáritun. Ferðalagið til Norður-Kóreu var heldur enginn dans á rósum en þegar félagarnir mættu á flugvöllinn í Peking, þar sem þeir áttu bókað flug til Pyongyang, var búið að aflýsa fluginu.

Myndin er tekin í Kína. Tekið skal fram að derhúfunni var hent áður en félagarnir fóru til Norður-Kóreu.
Ari Hermann og Almar Örn Myndin er tekin í Kína. Tekið skal fram að derhúfunni var hent áður en félagarnir fóru til Norður-Kóreu.

Mynd: Úr einkasafni

Eftir talsverða bið tóku norðurkóreskir embættismenn málið í sínar hendur og fóru með hópinn, sem átti bókað í vélina, upp í rútu og þaðan með lest á annan flugvöll þar sem flogið var til Pyongyang. Eftir tæplega sólarhrings ferðalag komust félagarnir loks á áfangastað.

„Við komum einhvern tímann eftir miðnætti daginn sem maraþonið var. Sem sagt við fengum hvorki næringarríkan mat né góða hvíld, líkt og fólki er yfirleitt ráðlagt fyrir svona átök,“ segir Ari.

Ánægðir með hlaupið

Það kom þó ekki að sök og Haukur hljóp maraþonið á 3:24:26 og hafnaði því í 25. sæti af 212 keppendum. Ari hljóp á 3:41:35 og hafnaði í 59. sæti og Almar á tímanum 3:57:22 sem færði honum 117. sætið.

„Þetta var ólýsanlega gaman. Í fyrsta skipti í maraþoni lét ég áhorfendur ekki trufla mig heldur naut þess að leyfa þeim að gefa mér „five“ og fylgjast með því sem var að gerast í kringum mig. Þetta var magnað,“ segir Haukur og bætir við að stjórnvöld hafi þó ekki tekið mikið tillit til hlaupara sem voru ekki með af fúlustu alvöru. „Þeir sem voru enn að, fjórum klukkustundum eftir að hlaupið var ræst var skutlað í mark. Eða það held ég.“

Þrátt fyrir að hafa verið í byggingu, með hléum, í 30 ár er ekki vitað hvenær það verður opnað.
Fyrir miðju myndarinnar má sjá Ryugyong-hótelið sem er á 105 hæðum. Þrátt fyrir að hafa verið í byggingu, með hléum, í 30 ár er ekki vitað hvenær það verður opnað.

Mynd: Haukur Lúðvíksson

Ari tekur undir orð Hauks og segir einfaldlega að tilfinningin að hlaupa maraþon í Pyonyang hafi verið „æðisleg.“
Vinirnir dvöldu í Norður-Kóreu í fjóra daga. Þrír leiðsögumenn fylgdu þeim hvert fótmál en þeir ferðuðust með hópi ferðamanna, og leiðsögumanna þeirra, í rútu um borgina og út í sveitir landsins. Ari og Haukur segja að það hafi komið þeim mikið á óvart hversu hrein höfuðborgin er og mikið um nýlegar byggingar. „Það sem við sáum í ferðinni var mjög eðlilegt og jákvætt. Ekkert í líkingu við þær neikvæðu fréttir sem maður hefur lesið um Norður-Kóreu í gegnum tíðina. En auðvitað sáum við bara það sem yfirvöld vildu að við sæjum. Fararstjórunum okkar var mikið í mun að upplifun okkar af landinu væri góð.“

Ekki á móti Vesturlandabúum

Haukur segir að áður en hann heimsótti landið hefði hann talið að Norður-Kóreumönnum væri mjög illa við Suður-Kóreumenn. „En svo er ekki. Þeir vilja sameina ríkin aftur og segja að í Kóreu allri búi um það bil 80 milljónir. Norðan megin búi um það bil 30 milljónir og 50 milljónir sunnan megin.“

Þá segir hann að leiðsögumenn þeirra hafi aldrei talað illa um nágranna sína í suðri og þeir hafi tekið sérstaklega eftir því hvað þeir voru kurteisir við bandaríska ferðamanninn sem var með þeim í hópferðunum.
„Við fundum enga andúð fyrir þær sakir að við værum Vesturlandabúar. Það eina sem Norður-Kóreumönnum er illa við er heimsvaldastefna Bandaríkjanna, ekki fólkið. Þeim var mikið í mun að láta það koma í ljós.“

Almar Örn,  Ari Hermann og Haukur fyrir hlaupið.
Þrír fræknir Almar Örn, Ari Hermann og Haukur fyrir hlaupið.

Mynd: Haukur Lúðvíksson

Ari kveðst hafa tekið sérstaklega eftir því hvað Norður-Kóreumenn virðast agaðir. „Það er enginn hokinn í baki. Þeir ganga um teinréttir og eru mjög vinnusamir. Alls staðar var fólk að vinna. Þetta er mjög frumstætt samfélag miðað við okkar. Enda kommúnista- og einræðisríki. Fólkið úti í sveitunum var til dæmis ekki með nýtísku traktora og þeir sem voru í steypuviðgerðum voru ekki með flottar vinnuvélar heldur létu sér nægja einfaldar múrskeiðar. Þetta var eins og að vera kominn áratugi aftur í tímann.“

Stíf dagskrá

Ari og Haukur eru sammála um að ekki hafi verið ætlast til þess að þeir blönduðu geði við heimamenn. „Okkur var haldið út af fyrir okkur með því að vera í stífri, fyrirfram skipulagðri dagskrá allan daginn. Við máttum rétt svo fara út að skokka við hótelið en alls ekki inn í borgina upp á eigin spýtur.“ Ari segir jafnframt að þeir heimamenn sem hann hitti í Norður-Kóreu hafi verið mjög vingjarnlegir og að börn hafi verið mjög áberandi og frjáls. „Það skildi mann samt enginn. Við máttum ekkert fara út úr hópnum. Mér fannst eins og það væri ekki ætlast til þess að maður væri að blanda geði við fólk.“

Þeir félagar tóku sérstaklega eftir því að allt virtist byggt til heiðurs leiðtogum landsins, Kim Jong-un, núverandi leiðtoga landsins, föður hans heitnum, Kim Jong-il, og hinum eilífa leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Il-sung. „Minnisvarðarnir eru einfaldlega yfirgnæfandi og úti um allt.“

Séð yfir hluta höfuðborgar Norður-Kóreu.Mynd: Hilmar Lúðvíksson.
Yfirlitsmynd Séð yfir hluta höfuðborgar Norður-Kóreu.Mynd: Hilmar Lúðvíksson.

Mynd: Haukur Lúðvíksson

Þegar félagarnir spurðu leiðsögumennina hvort það væri rétt að Kim Jong-il hefði fæðst hátt uppi á fjalli og við fæðingu hans hafi komið tvöfaldur regnbogi og ný stjarna hafi birst á himnum. Þeir sögðu það ekki rétt: „Þeir sögðu að hann hefði fæðst í þorpi rétt utan við höfuðborgina.“

Þá segir Ari að þeim hafi gefist kostur á að versla í búðum sem augljóslega voru aðeins ætlaðar ferðamönnum. Þar gátu þeir meðal annars keypt veggspjöld og póstkort með áróðri gegn erkióvininum, Bandaríkjunum.

Þjóðarrétturinn er hundasúpa

Ari segir verðlagið í landinu svipað og í Kína sem sé ekki eins og lágt og hann hafði ætlað. Þá eru félagarnir sammála um að maturinn í landinu sé ekki upp á marga fiska. „Við smökkuðum þjóðarrétt Norður-Kóreumanna en það er hundasúpa.“ Sem fyrrverandi hundaeigandi hafði Ari ekki mikla lyst á súpunni og lét sér því nægja að bragða örlítið á henni.

Þeir segja það alls ekkert launungarmál í Norður-Kóreu að þjóðin eigi vopn. Leiðsögumennirnir hafi þó þvertekið fyrir að Norður-Kórea færi í stríð að fyrra bragði.

„Leiðsögumennirnir sögðu að Norður-Kóreumenn myndu aðeins beita vopnunum til að verja landið. Þeir eru mjög hliðhollir leiðtoga landsins og þeir sem eru í náðinni hjá honum bera rauðar nælur. Þetta er auðvitað galið en við mælum með því að fólk geri sér ferð og upplifi þetta frá fyrstu hendi. Það mun enginn sjá eftir því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi