Mikið mæðir á Felix Bergssyni þessa dagana í kringum Eurovision-fárið. Hann var á sínum stað í beinni útsendingu RÚV á laugardaginn þar sem hann fræddi áhorfendur um keppinautana sem Svala Björgvinsdóttir, fulltrúi Íslands, þarf að berjast við með pappírinn að vopni. Klukkan 6.20 að morgni sunnudags hélt Felix síðan út til Kiev, höfuðborgar Úkraínu, þar sem úrslitakeppnin fer fram dagana 9.–13. maí. Þar var Felix viðstaddur undirbúningsfund fararstjóra þátttökuþjóðanna enda í mörg horn að líta. „Ef þú ert ekki í besta starfi í heimi,“ sagði vinkona kappans á Facebook-síðu hans.