Karl Wernersson hefur lokið afplánun á Kvíabryggju og er komin á áfangaheimilið Vernd. Karl var í apríl í fyrra dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir umboðssvik vegna 4,8 milljarða greiðslu Milestone til systur hans, Ingunnar.
Fyrir á Vernd er bróðir hans, Steingrímur, sem dæmdur var í sama máli til tveggja ára fangelsisvistar. Bræðurnir sameinast því á Vernd, sem er opið úrræði. Vistmenn hafa þó ákveðnum skyldum að gegna og þurfa til að mynda að mæta til sameiginlegs kvöldverðar milli klukkan 18 og 19 á kvöldin.