fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Orðin leiða mig áfram

Margrét Kristín Sigurðardóttir fagnar tuttugu ára tónlistarferli með stórtónleikum

Kolbrún Bergþórsdóttir
Sunnudaginn 19. nóvember 2017 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Kristín Sigurðardóttir (Fabúla) fagnar tuttugu ára tónlistarferli með stórtónleikum í Gamla Bíói 30. nóvember. „Ég ætla að halda upp á þetta ferðalag sem hófst fyrir tuttugu árum og gleðjast með þeim sem hafa verið samferða mér. Á tónleikunum flyt ég lög af öllum fjórum plötunum mínum og einnig nýtt efni. Ég er með sviðshönnuð og vídeólistafólk með mér og við förum á flug með áhorfendum í sýningu sem verður mjög sjónræn. Búum til ólíka heima fyrir ólík lög. Við bjóðum líka upp á alls kyns konfektmola í formi ólíkra og óvæntra gesta.“

Margrét er þekkt undir listamannsnafninu Fabúla og er spurð af hverju hún hafi tekið sér það nafn. „Ég hafði búið erlendis í fimm ár, kom heim og hélt mína fyrstu tónleika, djasstónleika, sem Magga Stína, á Púlsinum. Þá var nafna mín Blöndal komin í tónlistarbransann undir þessu sama nafni sem olli alls konar misskilningi.

Fabúlu-nafnið var upphaflega hugsað sem tvíeykisnafn. Við vorum tvö saman að framleiða plötu þar sem allir textarnir voru litlar sögur og okkur fannst Fabúlu-nafnið henta mjög vel. Svo þróaðist það þannig að Fabúlu-nafnið var nefnt þegar plötuna, eða nafn mitt bar á góma og ég ákvað að leyfa þessu að þróast þannig. Nafnið varð smátt og smátt mitt og mér fór að þykja æ vænna um það.“

Farvegur til að vinna úr sorginni

Byrjaðir þú snemma að syngja og semja lög?

„Ég var alltaf með annan fótinn í tónlist, en í æsku minni var ég ekki að semja lög heldur ljóð og sögur. Ég byrjaði að semja lög vegna þess að ég hafði þörf fyrir að finna sögunum farveg. Lag og texti verða oftast til samtímis, en orðin eru þó skrefi á undan. Orðin leiða mig áfram. Ég ætlaði að skrifa skáldsögu þegar ég var 10 ára og þetta varð svolítill doðrantur. Sagan hét Brúskur og mamma var voða hrifin. Hins vegar leyfði hún sér að gera athugasemd við endinn. Þá stakk ég bókinni eitthvert inn í fataskáp og hún týndist. Var óþolinmóð þá og er enn. Kannski róast ég með aldrinum. Ennþá hentar mér best að tjá mig afmarkað og stutt, eins og í ljóðum og lagatextum.“

Margrét hefur samið nokkur lög við ljóð Gerðar Kristnýjar. „Það kom upp hugmynd um að setja upp leikverk byggt á ljóðum hennar. Ég var beðin um að semja tónlist við það, ég sökkti mér ofan í ljóð hennar og er búin að semja nokkur lög við þau og mun flytja eitt þeirra á tónleikunum. Gerður tvinnar saman sársauka, fegurð og kaldhæðni á áhrifamikinn hátt.“

Á tónleikunum flytur Margrét einnig lag sitt Diamond Boy sem hún tileinkar vini sem var beittur ofbeldi í æsku. „Ég var á ferðalagi á Írlandi og hitti þar mann og við fórum að spjalla saman. Hann sagði mér að hann hefði orðið fyrir einelti í skóla og á sama tíma hefði faðir hans beitt hann ofbeldi. Þegar ég kom upp á hótelherbergi eftir að hafa talað við hann þyrmdi yfir mig vegna sögu þessa drengs sem hafði ekki átti sér öruggan stað. Ég settist niður og samdi lag sem ég tileinka honum og öllum þeim sem hafa orðið að þola hörmungar eins og þessar. Mesta meinsemd hvers þjóðfélags er að börn skuli þurfa að alast upp við ofbeldi.“

Hefur þú sjálf upplifað mikinn sársauka á ævinni?

„Í æsku bjó ég við mikla ást og öryggi. Tilveran hrundi hins vegar þegar systir mín fyrirfór sér 29 ára gömul, þá var ég 26 ára. Hún var bráðþroska barn og hafði snemma áhyggjur af mörgu og glímdi við þunglyndi. Við vorum mjög nánar. Þegar hún dó ég var ég í leiklistarnámi í Noregi og var tvístígandi hvort ég ætlaði að helga mig leiklistinni eða tónlistinni. Ég valdi tónlistina, hún varð minn farvegur til að vinna úr sorginni.“

Þröngar áherslur skólakerfisins

Margrét er kennaramenntuð og hefur starfað sem kennari meðfram því að sinna tónlistinni. Hún hefur sterkar skoðanir á skólamálum. „Um tíma vann ég sem kennari í Hlíðaskóla og starfaði við deild þar sem voru börn sem engin úrræði voru fyrir í hefðbundnum skólum. Deildina kölluðum við vinnustofu, og þar voru fimm nemendur með ýmsar greiningar. Þeir voru miklir orkuboltar og snillingar, en hæfileikar þeirra lágu á ólíkum sviðum. Námið var sniðið að þörfum þeirra og áhugamálum. Einn þeirra átti t.d. talsvert erfitt með samskipti en hafði mikla smíðahæfileika. Við unnum því náið með smíðakennaranum, drengurinn fékk auka smíðatíma og aðstoðaði líka yngri börn. Í smíðastofunni var sjálfsmynd hans sterk, þar naut hann sín til fulls og það hafði áhrif á alla líðan hans og samskipti. Alfræðiorðabækur og Lifandi vísindi voru svo alltaf við hendina hjá okkur í vinnustofunni, því vísindaáhugi sumra þeirra var gífurlegur. Einnig sökktum við okkur í skáldsögur, lásum mikið saman og tefldum og hreyfðum okkur. Svo tókum við rútínuvinnu í námsbókunum í stuttum törnum.

Ég tel skyldu mína sem kennara vera númer eitt, tvö og þrjú þá, að sjá einstaklinginn, styrkleika hans og gefa honum færi á að blómstra á eigin forsendum. Því spyr ég gjarnan nemandann: Hvenær ertu glaðastur/glöðust? Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Því þar sem gleðin liggur, liggja gjarnan hæfileikarnir. Þar liggur styrkurinn og krafturinn.

Börn ættu að fá að velja miklu fyrr. Við vitum innst inni hver við erum ansi snemma. Svo er stundum eins og við týnum okkur á unglingsárunum og finnum okkur aftur síðar. Kannski myndum við síður týna okkur ef við fengjum viðurkenningu á því hver við erum í skólakerfinu.

Ég myndi vilja breyta skólakerfinu töluvert, koma með valmöguleika inn mun fyrr og byggja það upp eins og smiðjur. Vísindasmiðju, bókmenntasmiðju, handverkssmiðju, leiklistarsmiðju, myndlistarsmiðju, stærðfræðismiðju o.fl. Nemendur gætu valið sér smiðjur eftir áhugamálum og fengið að grúska og blómstra, hver á sínu sviði. Einhverja grunnþekkingu og innsýn fengju allir á ólíkum sviðum, en fengju að eyða mun meiri tíma á áhugasviði sínu en nú er. Þetta myndi gera öllum jafn hátt undir höfði, byggja upp sjálfsmynd og koma í veg fyrir að nemendur finni sig alls ekki í skólakerfinu og týni sér alveg. Hve margir hafa ekki hrökklast út úr skólakerfinu, upplifað sig sem tapara af því að áherslur skólakerfisins hafa verið of þröngar? Sem betur fer er nám í grunnskólum orðið mun fjölbreyttara en áður var og tillit til einstaklinga meira, en við þurfum að gera betur. Þegar ég hóf kennslu við deildina í Hlíðaskóla, var hugtakinu „einstaklingsmiðað nám“ mikið haldið á lofti. Á sama tíma var ákveðið að koma á samræmdum prófum í 4. bekk. Þvílíkar hrópandi andstæður. Að láta öll 9 ára börn á landinu taka sömu prófin er skelfileg hugmynd. Þau eru hvert á sinni leið og gjörsamlega tilgangslaust að vera að mæla hvar þau standa hvert miðað við annað á örfáum afmörkuðum sviðum.“

Leiklistarnám og kvikmyndahlutverk

Það eru ekki einungis tónlistin og kennslan sem heilla Margréti. Fyrir tveimur árum lauk hún leiklistarnámi í London. „Leiklistin hefur alltaf verið hluti af mér,“ segir hún. Hún fer með hlutverk í kvikmyndinni Taka 5 sem Magnús Jónsson leikstýrir og skrifar handrit að og verður frumsýnd 2018. Hún fer einnig með lítið hlutverk í annarri þáttaröðinni af Ófærð. Margrét fer einnig við og við til London að vinna við talsetningu og á dagskrá er verkefni í desember sem hún segist ekki geta skýrt frá að sinni.

Þú ert að fagna tuttugu ára tónlistarferli. Ertu sátt við þá leið sem þú valdir þér í listinni?

„Að einhverju leyti velur maður meðvitað, en að öðru leyti leiðir lífið mann. Ég hef samið tónlist mína af einlægni og það hefur leitt mig áfram. Einhvern tímann var ég spurð hvort mér fyndist ég hafa náð langt. Svar mitt er já, því ég hef náð inn í hjörtu fólks og þangað var ferðinni alltaf heitið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“