fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Grétar ætlar ekki að heimsækja sjúkrahús í heilt ár: Stunginn með skrúfjárni í Serbíu

„Ég er búinn að vera hrakfallabálkur allt mitt líf“

Björn Þorfinnsson
Sunnudaginn 8. janúar 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta eru nú eingöngu fjögur síðustu ár og þessar myndir voru bara á símanum. Ég er búinn að vera hrakfallabálkur allt mitt líf. Ég ólst upp í Neskaupstað og mamma vann á spítalanum. Ef nokkrir dagar liðu án þess að ég kæmi með áverka upp á spítala fóru læknarnir að undrast um mig,“ segir Grétar Sigurðsson í samtali við DV og hlær um leið. Tilefni samtalsins er nýársheit Grétars sem vakið hefur talsverða athygli. Grétar birti heitið á Facebook-síðu sinni en það snýr að því að Grétar stefnir á að leita ekki læknis eða fara á sjúkrahús í heilt ár. Með heitinu fylgja allsvakalegar myndir af Grétari með áverka eftir hin ýmsu óhöpp undanfarinna ára.

Skurður eftir að æxli var fjarlægt úr hálsi Grétars.
Skorinn á háls í Serbíu Skurður eftir að æxli var fjarlægt úr hálsi Grétars.

Stunginn með skrúfjárni í Serbíu

Fyrir utan áverkana á myndunum hefur Grétar, undanfarin fjögur ár, brotið fingur, rifið sin í löngutöng með þeim afleiðingum að fingurinn er fastur, brotið ristina á sér, lagst inn á spítala út af vírussýkingu auk þess sem viðbein fór úr liði. Þá hefur Grétar brotið rif og fengið gat á lungað en svakalegasta atvikið átti sér þó stað í Serbíu en þar dvelur hann langdvölum vegna viðskipta.

„Ég var á veitingastað þar ytra þegar ég heyrði konu öskra á hjálp. Ég rauk upp og athugaði hvað væri í gangi en sá þá nokkra menn vera að draga konuna inn í sendiferðabíl,“ segir Grétar. Hann segist ekki hafa ætlað að leika neina hetju en afskipti hans hafi fyrst og fremst skrifast á hvatvísi og hugsunarleysi. „Ég spurði þá hvað eiginlega væri í gangi en þá réðust þeir til atlögu við mig,“ segir Grétar. Til talsverðra átaka kom en Grétar náði að verja sig að mestu leyti, allt þar til einum árásarmanninum tókst að stinga hann í kviðinn með skrúfjárni. „Stúlkan komst sem betur fer undan og ég jafnaði mig nú á þessu,“ segir Grétar, eins og ekkert sé sjálfsagðara.

Þessi skurður var afleiðing þess að Grétar var að festa spegil á vegg. Hann gekk aðeins of hart fram með þeim afleiðingum að spegillinn sprakk og glerbrotum rigndi yfir hann.
Blóðugur Þessi skurður var afleiðing þess að Grétar var að festa spegil á vegg. Hann gekk aðeins of hart fram með þeim afleiðingum að spegillinn sprakk og glerbrotum rigndi yfir hann.

„Ég var skorinn á háls í Serbíu“

Fleiri áverka má rekja til Serbíu, þar á meðal stóran skurð á hálsi. „Ég var skorinn á háls í Serbíu. Væri það ekki flott fyrirsögn? “ segir Grétar og hlær. Blaðamaður er eitt spurningarmerki en Grétar útskýrir að hann hafi greinst með æxli í hálsi en átt erfitt með að fá úrlausn mála hér heima. „Ég fór því í aðgerðir í Serbíu og í þeirri seinni tókst að fjarlægja meinið alveg. Það er náttúrlega ekki allt eins og það á að vera þegar íslenskur ríkisborgari þarf að leita sér læknisaðstoðar í Serbíu,“ segir Grétar.

Grétar þurfti að fara í tvær aðgerðir á brjósti fyrir rúmum þremur árum.
Marinn Grétar þurfti að fara í tvær aðgerðir á brjósti fyrir rúmum þremur árum.

Leggur inn í karmabankann

DV fjallaði í októberlok um góðverk Grétars þegar hann keypti mat og aðrar nauðsynjar fyrir þurfandi einstaklinga í stað þess að halda afmælisveislu. „Að hitta þessi krakkagrey um helgina. Augun sýndu glögglega hversu glorhungruð, hrædd og þreytt þau voru. Það er of margt fólk í samfélaginu sem bráðvantar allt,“ sagði Grétar og lét svo sannarlega kné fylgja kviði í góðverkunum. „Þegar upp var staðið hafði ég keypt mat fyrir rúmlega hálfa milljón og rétt fyrir jólin eldaði ég mat fyrir um 170 manns. Ég er að leggja inn í karmabankann og vonandi skilar það sér í færri slysum og óhöppum á árinu,“ segir Grétar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“