Á tímum pólitísks óróa og átaka er oft gripið til ýmissa frasa í fréttum og umræðunni. Einn þeirra er orðinn ansi þreyttur að mati Kastljósstjörnunnar Helga Seljan sem segir á Twitter, í kjölfar frétta af úrsögn Sjálfstæðiskvenna úr flokknum:
„Getum við hætt þessu tali um þungavigtarkonur og karla. Nema náttúrulega þau séu það, það er í þeim þyngdarflokki í bardagaíþróttum?“
Spurning hvort kollegi Helga hjá RÚV, Arnar Páll Hauksson, taki undir þessa hugmynd?