Kappinn er væntanlegur til Íslands í desember næstkomandi
Grínistinn og ofurhuginn Stephen Glover, sem flestir þekkja undir nafninu Steve-O, braut bein í báðum fótleggjum þegar áhættuatriði sem hann kom fram í fór illilega úrskeiðis. Sjá má myndband af atvikinu neðst í fréttinni en athygli er vakin á því að það er ekki fyrir viðkæma.
Það var hjólabrettakappinn Tony Hawk sem tók myndbandið upp, en á því má sjá Steve-O standa ofan á litlum spítukofa með hjólabretti í höndunum. Annar hjólabrettakappi, Danny Way, tekur sig til og ekur rauðum fólksbíl á kofann á talsverðum hraða. Í þann mund átti Steve-O að hoppa upp og reyna að lenda á hjólabrettinu á tveimur jafnfljótum.
Þetta gekk ekki betur en svo að Steve-O lenti illa í þriðju tilrauninni og þríbrotnaði á hægri ökklanum. Þá braut hann hælbein í vinstri fætinum. Hann mun þurfa að gangast undir aðgerð til að fá meina sinna bót. Steve-O er ýmsu vanur enda var hann hluti af hinu goðsagnakennda Jackass-gengi sem naut gríðarlegra vinsælda á árum áður.
Þess má geta að kappinn er væntanlegur hingað til lands í desember næstkomandi. Steve-O mun vera með uppistand í Háskólabíói, en hann hélt uppistand hér á landi síðast árið 2011. Ekki er vitað til þess að ökklabrotið muni hafi einhver áhrif á þau áform.
Myndbandið af slysinu má sjá hér að neðan:
[youtube https://www.youtube.com/watch?v=-OAcsYVP4oE&w=560&h=315]