Stefán og Guðný munu ekki sakna íslenska veðurfarsins, að greiða fyrir RÚV og myrkursins í desember. Þá eru þau ósátt við háa vexti íslenskra banka. Þau hafa því ákveðið að yfirgefa Ísland og freista gæfunnar í Danmörku. Frá þessu er greint á Bleikt.is en þar er haft eftir þeim að erfitt sé að koma undir sig fótunum. Þá sé ýmislegt sem betur megi fara.
Parið talar opinskátt um flutninginn og hafa stofnað vefsíðu þar sem hægt er að fylgjast með hvernig þeim gengur. Á Youtube birta þau svo myndskeið þar sem þau telja upp þá hluti sem þau munu ekki sakna en myndskeiðið má sjá hér. Á Instagram birta þau svo myndir yfir hlutina sem þau munu sakna en á listanum er kötturinn þeirra Mia, ís og pylsa og lambakjöt.
Stefán og Guðný munu ekki sakna:
Veðursins
Birtunnar á sumrin
Þurfa greiða fyrir RÚV, „endurtekningar og ömurlegir þættir.“
Myrkursins
Okur á matvöru
Leigumarkaðarins, „erfitt að leiga, ef þú ert í námi er það nánast ómögulegt“.
Okurvaxta á húsnæðislánum, „á Íslandi eru hæstu vextir í heiminum, þetta eru ástæðurnar af hverju við erum að yfirgefa landið okkar. Okkar fallega land.“
Hér má sjá myndskeið Guðnýjar og Stefáns.