fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Skilur ekki hvernig tónlistin fannst

Kolbrún Bergþórsdóttir
Sunnudaginn 29. maí 2016 22:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hljómsveitina Asdfhg skipa þau Steinunn Jónsdóttir og Orri Úlfarsson. Samstarf þeirra hófst eftir að hljómsveitin hafði þegar unnið til verðlauna og hið undarlega nafn hljómsveitarinnar er tilkomið af einskærri tilviljun. Orri sagði blaðamanni betur frá hljómsveitinni sem er að slá rækilega í gegn hjá tónlistarsenunni hérlendis.

Steinunn og Orri eru nemendur við Menntaskólann í Hamrahlíð en þau hafa bæði lagt stund á tónlistarnám og grúskað ýmislegt í tengslum við tónsmíði. Þrátt fyrir áralanga vináttu vissu þau ekki að bæði voru að búa til svipaða tónlist hvort í sínu horninu.

„Við erum tiltölulega nýmynduð elektrónísk hljómsveit sem byggir á starfi sem Steinunn vann Kraumsverðlaunin fyrir á síðasta ári. Fyrst var hún sem sagt ein í hljómsveitinni en eftir að ég vissi af tilvist hennar fékk ég að vera með. Síðan þá höfum við unnið sjúklega mikið í þessari tónlist og gengið alveg rosalega vel.“

Þrátt fyrir stutt samstarf hafa viðtökurnar verið gríðarlega góðar en hljómsveitin spilaði á tónlistarhátíðinni Sónar og er bókuð í alls kyns gigg í sumar. En hvers konar hljómsveit er þetta og hvurslags tónlist spilar hún?

„Við spilum svokallaða „low fi“ mínímalíska raftónlist. Ég veit ekki til þess að þetta sé heitt í dag en okkur finnst skemmtilegt að búa til þessa tónlist og erum meira að vinna hana fyrir okkur sjálf þótt það sé virkilega ánægjulegt að aðrir vilji hlusta.“

„Low fi“ stendur fyrir low fidelity og er formerki tónlistar sem tekin er upp í minni gæðum en annars tíðkast við upptökur á nútímatónlist. Því er oft um að ræða tónlist sem er tekin upp í heimahúsi við minni tækni en annars gengur og gerist.

Orri segir þau Steinunni vinna og semja tónlistina jafnt. Þegar þau spila á tónleikum tekur Steinunn að sér sönginn en sjálfur sér hann um tæknilegu hlið tónlistarinnar.

„Við vinnum þetta að mestu leyti saman en oftast gerist það þannig að annað hvort okkar er andvaka og fer þess vegna að búa til eitthvað sem það sýnir svo hinu daginn eftir. Við eigum bæði við töluverð svefnvandamál að stríða sem nýtist okkur blessunarlega vel í tónlistinni,“ segir Orri og hlær að óvenjulegum vinnuaðferðum þeirra samstarfsfélaganna.

Tilviljanir ráða för

Það virðist margt vera tilviljunum háð í tengslum við hljómsveitina Asdfhg. Vinirnir voru óafvitandi að gera eins tónlist sem þau vissu ekki til þess að aðrir væru að fíla sem kom svo í ljós að væri að ganga vel í landann. En hvaða merkingu hefur nafnið Asdfhg, var hljómsveitinni gefið nafnið af einhverri ástæðu?

„Nafnið hefur enga merkingu og hljómsveitin heitir þessu nafni óvart. Steinunn gerði fyrstu plötuna, Steingervingur. Hún setti hana á netið en vildi ekki að neinn myndi finna hana og þess vegna setti hún hana inn undir þessu bullnafni. Fólkið sem stóð að Kraumsverðlaununum fann plötuna fyrir tilviljun og hélt að þarna væri á ferðinni hljómsveit sem héti þessu nafni. Í kjölfarið vann Steinunn Kraumsverðlaunin og hefur furðað sig mikið á því hvernig tónlistin fannst. Hún hefur ekki komist til botns í því máli enn þá. Tónlistin var ekki einu sinni skráð hérlendis heldur á einhverjum sveitabæ í Póllandi. Þetta er því hið undarlegasta mál en fínasta nafn.“

Með allt á netinu

Asdfhg hefur gefið út tvær plötur, þ.e. Steingerving eftir Steinunni, sem hún setti í sakleysi sínu á netið síðastliðið haust og svo plötuna Skammdegi, sem þau gáfu nýlega út saman. Báðar plöturnar eru aðgengilegar öllum á heimasíðunni www.asdfhg.bandcamp.com

„Við erum með allt á netinu. Það geta allir hlaðið niður plötunum okkar en svo er hægt að kaupa þær ef einhver hefur hug á að styrkja hljómsveitina. Okkur finnst mikilvægt að tónlistin sé aðgengileg því við teljum það líklegra að fólk vilji hlusta á okkur ef við erum ekki að neyða það til þess að borga okkur pening fyrir. Okkur finnst gamaldags að hugsa um tónlist sem einhvers konar neysluvöru og teljum mikilvægara að fólk geti fengið að njóta tónlistarinnar að vild.“

Það er greinilegt að hér er á ferðinni metnaðarfullt tónlistarfólk með miklar hugsjónir og því viðeigandi að spyrja að lokum, hvert stefnir hljómsveitin Asdfhg?

„Við erum hvorugt búin að ákveða hvað við viljum gera í framtíðinni. Í augnablikinu fílum við þetta vel og ætlum bara að leyfa þessu að spilast. Við stefnum ekkert sérstakt heldur sjáum bara hvert þetta leiðir okkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi