fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

„Staðarákvörðun ókunn, allir á lífi“

Í haust eru liðin 65 ár frá Geysisslysinu – Björgunarvél festist á Vatnajökli

Kolbrún Bergþórsdóttir
Laugardaginn 30. apríl 2016 09:00

Í haust eru liðin 65 ár frá Geysisslysinu – Björgunarvél festist á Vatnajökli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Geysir, millilandavél Loftleiða, átti að lenda á Reykjavíkurflugvelli tíu mínútum eftir miðnætti föstudaginn 15. september 1950, en vélin hafði haldið frá Lúxemborg klukkan 16.30 að íslenskum tíma. Engir farþegar voru um borð, aðeins sex manna áhöfn. Eðlilegt loftskeyta- og talsamband var við vélina frá Reykjavíkurflugvelli er hún var í nánd við Færeyjar. Þá var klukkan 21.30. Tæpri hálfri klukkustund síðar náðist aftur samband við vélina og taldi flugstjórinn hana nærri landi. Flugvélin yrði á undan áætlun og myndi lenda í Reykjavík klukkan 23.30.

Björn Jón Bragason skrifar. Birtist áður í DV.

Ekkert bólar á vélinni

Áætlað var að Geysir yrði við Vestmannaeyjar klukkan 23.10 og þá kallaði flugturninn í Reykjavík til vélarinnar en fékk ekkert svar. Kallað var nokkrum sinnum en það bar ekki árangur. Töldu flugumferðarstjórar líklegast að senditæki vélarinnar hefðu bilað. Þegar komið var fram yfir miðnætti og ekkert bólaði á vélinni þótti sýnt að slys hefði orðið. Lýst var yfir neyðarástandi og öllum flugumferðarstöðvum á Norður-Atlantshafi gert viðvart. Þá voru leitarflokkar ræstir út víðsvegar um Suðurland.

Leitarflugvélar héldu í loftið í birtingu, alls níu vélar. Einnig var leitað á sjó og landi fram eftir föstudeginum og alla helgina, en án árangurs. Íbúar í Álftafirði höfðu heyrt í flugvél að kvöldi fimmtudagsins og var talið fullvíst að þar hafi Geysir verið á ferð. Var talið að vélin hefði þá flogið inn yfir landið norðar en ráð var fyrir gert og líklega rekist á fjall. Ekkert sást til vélarinnar þrátt fyrir mikla leit.

„Allir á lífi“

Klukkan 13.55, mánudaginn 18. september, nam Kristján Júlíusson, loftskeytamaður á varðskipinu Ægi, veikt neyðarkall frá Geysi, en skipið var þá statt út af Skálum á Langanesi. Fyrsta skeytið var svohljóðandi: „Staðarákvörðun ókunn, allir á lífi.“ Síðar bárust fleiri skeyti þar sem sagði að flugvélin hefði lent á jökli og að flugvélar hefðu flogið yfir daginn áður í þoku. Flugturninum í Reykjavík var þegar gert viðvart og áhöfn leitarvélarinnar Vestfirðings ræst út. Hábunga Dyngjujökuls var nú heið og komu leitarmenn fljótt auga á Geysi og áhöfnina við flakið. Fljótlega komu fleiri vélar á vettvang og varpað var niður matvælum og skjólfatnaði, auk betra senditækis.

Mikill fögnuður braust út er greint var fundi vélarinnar, en næsta mál á dagskrá var að bjarga áhöfninni niður af jöklinum. Ógerlegt var að lenda flugvél þar, svo ekki var um annað að ræða en senda leitarflokk landleiðina og hélt hópur manna frá Ferðafélagi Akureyrar suður yfir öræfin frá Mývatni. Leitarflokkurinn kom að Kistufelli seint að kvöldi þriðjudagsins 19. september. Þaðan var haldið á jökulinn að morgni næsta dags.

Þrjár vélar voru sendar hingað til lands til björgunarstarfa á jöklinum.
Björgun Þrjár vélar voru sendar hingað til lands til björgunarstarfa á jöklinum.

Björgunarvél festist

Um hádegið á þriðjudeginum bárust af því fregnir að þrjár vélar hefðu verið sendar hingað til lands til björgunarstarfa á jöklinum. Um var að ræða Dakota-vél á skíðum og þyrlu, sem flutt var inn í Skymaster-vél, en þessar vélar voru sendar frá Blue West-flugvellinum á Grænlandi. Með í för voru læknar, hjúkrunarlið, fallhlífarmenn og sleðahundar. Hugmyndin var sú að skíðavélinni yrði lent á jöklinum og áhöfninni flogið til Reykjavíkur.
Áhöfn Geysis var gert viðvart um komu björgunarliðsins og markaði hún flugbraut á jöklinum með svörtum krossi við hvorn enda. Skíðavélin lenti giftusamlega á jöklinum, en þegar hún ætlaði að hefja sig til flugs sat hún föst í snjónum. Áhöfn Geysis varð því að gista enn eina nótt á jöklinum, en hafði fengið næturgesti að þessu sinni, sem var áhöfn skíðavélarinnar.

Áfram var reynt að koma björgunarvélinni í loftið daginn eftir, en það bar engan árangur. Brátt bar að hjálparliðið frá Akureyri og hélt áhöfn Geysis niður af jöklinum fótgangandi í fylgd með þeim. Áhöfn skíðavélarinnar hélt nokkru síðar einnig niður af jöklinum fótgangandi í fylgd nokkurra björgunarmanna frá Akureyri. Niðurgangan reyndist erfið í nístingskulda og þoku. Í birtingu næsta dag voru þó allir komnir heilu og höldnu að Kistufelli. Þar í næsta nágrenni fann Björn Pálsson flugmaður nothæfan lendingarstað og þangað var mannskapurinn sóttur.

Á ellefta tímanum að morgni fimmtudagsins 22. september lentu tvær flugvélar Loftleiða í Reykjavík með áhafnir vélanna. Mikill mannfjöldi hafði safnast saman á flugvellinum þennan morgun. Áhöfn Geysis bar sig vel en var bersýnilega illa leikin eftir slysið og vistina á jöklinum. Dagfinnur Stefánsson flugmaður var særður í andliti og Ingigerður Karlsdóttir flugfreyja meidd í baki. Þá var öll áhöfnin illa brunnin í andliti eftir sól og frost. Aðrir í áhöfninni voru Bolli Gunnarsson loftskeytamaður, Einar Runólfsson vélamaður, Magnús Guðmundsson flugstjóri og Guðmundur Sívertsen siglingafræðingur.

Erfiðar aðstæður á jöklinum

Magnús flugstjóri skýrði blaðamönnum svo frá tildrögum slyssins: „Við töldum okkur vera í 8000 feta hæð og á réttri leið með stefnu á Vestmannaeyjar. Flugveður var illt, hvasst, þoka, snjókoma og myrkur. Loft var ókyrrt og uppstreymi og niðurstreymi á víxl. Mikil ísing var farin að setjast á vélina og við vorum að búa okkur undir að setja ísvarnartækin á þegar klukkan var 22.30.“ Vélin hefði þá allt í einu rekist á og hann ekki fyllilega gert sér ljóst hvernig það gerðist en hann taldi að vélin hefði „fyrst rekið niður vinstri vænginn, síðan tekið hátt loftkast, rekið næst niður skrúfurnar og steypst yfir sig og runnið eftir jöklinum á hvolfi uns hún staðnæmdist. Fremsti hlutinn var þá að hálfu brotinn frá og lá á hliðinni“.

Eftir brotlendinguna braust áhöfnin út úr vélinni með því að brjóta rúðu á glugga. Enginn var teljandi meiddur nema Dagfinnur flugmaður, sem fengið hafði höfuðhögg. Þegar út var komið var stormur og snjókoma. Grípum aftur niður í frásögn Magnúsar: „Hið fyrsta, sem ég gerði var að fara aftur með vélinni, því að þar heyrði ég köll Ingigerðar, sem hafði verið í næsta klefa fyrir aftan flugmenn. Sat hún þar rígskorðuð í samanbeygluðum klefanum, og tókst okkur með herkjum að draga hana út um op, sem þar hafði myndast.“

Því næst bjó áhöfnin um sig aftast í farþegarýminu. Ekki var þó skjólgott þar og lítið sofið fyrstu nóttina. Talsvert var af vefnaðarvöru um borð í vélinni, sem nú kom að góðum notum til að skýla áhöfninni í kuldanum. Matarvistir voru litlar, en ekki náðist til gúmmíbáta vélarinnar þar sem matarforði var geymdur. Það var ekki fyrr á fjórða degi sem tókst að komast að gúmmíbátunum þar sem finna mátti lítið handsnúið senditæki. Það var hægt að nota til að senda út boð um að allir væru heilir á húfi.

Skíðavélinni bjargað

Í apríl árið eftir héldu Loftleiðamenn, ásamt félögum, upp á jökulinn með tvær stórar beltisýtur og fjóra sleða. Skyldi þess freistað að bjarga skíðavélinni af jöklinum. Á næstu vikum var unnið það þrekvirki að grafa vélina upp og draga hana niður af jöklinum milli Skaftár og Hverfisfljóts. Flugvélinni var lent í Reykjavík hinn 5. maí 1951 að viðstöddum miklum mannfjölda. Í vélinni voru flugmennirnir Alfreð Elíasson og Kristinn Olsen, auk Hrafns Jónssonar bifvélavirkja. Loftleiðamenn seldu vélina og varð afraksturinn mikil lyftistöng fyrir rekstur félagsins á næstu árum.
Þessi björgunarafrek eru enn í hávegum höfð nú tæpum 65 árum síðar, enda kraftaverk að öll áhöfn Geysis skyldi komast lífs af.

Heimild: Frásagnir blaðanna og Öldin okkar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“