Í gær var liðið 41 ár frá því að íslenskar konur vöktu heimsathygli með því að leggja niður störf til að vekja athygli á vinnuframlagi kvenna. Ótal konur víða um landið lögðu niður störf klukkan 14.38 í gær, mánudag, til að mótmæla kynbundnum launamun og krefjast launajafnréttis. Gárunginn og Orðbragðsstjarnan Bragi Valdimar Skúlason lagði á Facebook í gær til eina aðgerð til að losna við þessa plágu.
„Ég er viss um að við losnum fyrr við launamisrétti ef við köllum það oftar sínu réttu nafni: pungfýlufretskunkayfirgang.“