Dætur Birkis Jóns skírðar

Hrífandi skírnarathöfn

Birkir Jón Jónsson eignaðist tvíbura í júnímánuði og eru þetta fyrstu börn hans.

Dagný Jónsdóttir var annar skírnarvotturinn og var snortin af skírnarathöfninni sem haldin var á laugardaginn.

„Tvö lítil kraftaverk voru skírð í dag, þær Auður Björk og Guðrún Halldóra. Mikil gleðistund og ég var stoltur skírnarvottur. Það verður gaman að fylgjast með þeim systrum i framtíðinni,“ sagði Dagný á Facebook-síðu sinni.

DV hafði samband við Birki Jón á vormánuðum vegna barnalánsins, þá vildi hann ekki tjá sig um málið og vildi halda einkalífinu aðskildu frá starfi sínu á Alþingi.

Þingmenn og ráðherrar þessarar ríkistjórnar hafa átt miklu barnaláni að fagna eftir kreppu og virðast sanna þá gamalgrónu mýtu að í efnahagssamdrætti fjölgi barneignum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.