Andrea Kristín Unnarsdóttir, Andrea „slæma stelpa“ eins og hún kýs að kalla sig, giftist unnusta sínum og samverkamanni Jóni Ólafssyni í fangelsinu á Litla-Hrauni þann 7. september síðastliðinn. Samkvæmt heimildum DV var athöfnin fábrotin en engir gestir voru viðstaddir. Andrea og Jón hafa verið par til margra ára.
Andrea afplánar fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm í kvennafangelsinu í Kópavogi fyrir þátt sinn í hrottalegri árás á unga konu í Hafnarfirði í desember. Jón var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir sína aðild í málinu en þau voru bæði dæmd fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og kynferðisbrot.
Andrea er sögð hafa sterk tengsl inn í Hells Angels en Jón mun hafa verið meðlimur í S.O.D sem eru stuðningssamtök Hells Angels á Íslandi. Þau voru bæði ákærð fyrir aðild að skipulagðri glæpastarfsemi en voru sýknuð af þeim ákærulið.
Hreinn Hákonarson fangelsisprestur segir sjaldgæft að fangar gangi í hjónaband á meðan þeir afplána fangelsisdóm en það hafi þó komið fyrir. Hann vill ekki tjá sig um einstök mál en segir að almennt séð sé ekkert því til fyrirstöðu að fólk gifti sig innan fangelsismúranna. „Það er almennt mjög sjaldgæft að fólk sem er í afplánun sé að giftast. Það bíður yfirleitt með það þar til það er orðið frjálst. En fangar hafa mannréttindi og þó þeir séu í fangelsi mega þeir ganga í það heilaga.“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum