Rikka í nýjum þætti

Sjónvarpsstjarnan Friðrika Hjördís Geirsdóttir mun snúa aftur á skjáinn í vetur því hún verður einn af dómurum í raunveruleikaþættinum Masterchef Ísland sem verður sýndur á Stöð 2. Auk Rikku munu þeir Eyþór Rúnarsson, kokkur á Nauthóli, og Ólafur Örn Ólafsson, yfirþjónn á Hótel Marína, dæma þátttakendur.

Tökur á þættinum eru hafnar en tæplega 500 áhugasamir sóttu um að fá að taka þátt. Þar af voru 50 kallaðir í áheyrnarprufur en þátturinn er byggður að erlendri fyrirmynd.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.