Kveður Hinrik með rapplagi

„Man þegar við töluðum saman fyrst og hann lánaði mér fyrir orkudrykk“

Ólafur Gunnar Daníelsson, vinur Kristjáns Hinriks Þórssonar sem myrtur var í Tulsa í Bandaríkjunum fyrir rúmlega viku, hefur samið rapplag til minningar um vin sinn. „Með þessu er ég að kveðja Hinrik,“ segir hann.

Ólafur og Hinrik þekktust frá því að Ólafur var þrettán ára og Hinrik fimmtán. „Ég held við höfum fyrst talað saman í Kringlunni. Ég man að þá lánaði hann mér fyrir orkudrykk,“ segir Ólafur sem saknar vinar síns og á ljúfsárar minningar um þeirra fyrstu kynni.

Sjálfur rappar hann í laginu en Ezekiel Mar og Margrét Rán syngja viðlagið.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.