Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
07:00 › 16. september 2012
„Ísland er með undarlegri stöðum sem ég hef ferðast til. Undarlegur – en góður. Ég eyddi 10 dögum þar og missti jarðtenginguna algerlega. Þegar ég ferðast um þá sanka ég að mér staðreyndum um þjóðareinkenni, siði, venjur og þess háttar. En þegar ég heimsótti Ísland fyrir viku, þá rigndi þessum staðreyndum yfir mig úr öllum áttum,“ segir Sarah Wilson á bloggi sínu.
Sarah er þekkt fjölmiðlakona frá Ástralíu sem bloggar um ýmis ævintýri sín og ferðalaginu til Íslands gerir hún góð skil með ljósmyndum af Íslendingum og lifandi frásögn. Bloggið er á sarahwilson.com.au og þar má einnig líta gott safn mynda.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013