Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
10:00 › 15. september 2012
„Við erum góðir vinir og höfum verið að deita í einhvern tíma,“ segir glamúrdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir um samband sitt við fyrirsætuna og knattspyrnumanninn Angel Kalinov en myndir af parinu hafa birst bæði í íslenskum og erlendum fréttamiðlum.
Ásdís Rán, sem skildi við knattspyrnumanninn Garðar Gunnlaugsson fyrr á árinu, vill lítið tjá sig um nýja gæjann. „Eins og ég hef áður sagt þá er ég ekki alveg tilbúin að fara í fast samband svona strax. En þetta er alveg „perfect“ drengur. Það er aldrei að vita nema það verði eitthvað meira úr þessu.“
Lestu meira í Helgarblaði DV!


Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi