Fallegustu mæðgur Hollywood

Sjaldan fellur eplið lagt frá eikinni

Við horfum til Hollywood-stjarnanna með stjörnur í augunum. Fegurð, frægð og peningar og allt sem hugurinn girnist. En hvaðan kemur útlitið?

Þessar fallegu konur fengu ekki aðeins hjálp frá heimsins færasta snyrti- og hárgreiðslufólki, svölustu stílistum sem peningar geta keypt og dýrustu og hæfileikaríkustu lýtalæknum jarðar. Þessar konur duttu í lukkupottinn því þær erfðu fegurðina frá mömmu sinni.

Tracee Ellis Ross og Diana Ross

Þessi stóru augu, mikla hár og undurfögru andlit plús fullir fataskápar af dýrasta og fallegasta hátískufatnaði sem peningar geta keypt. Getur Ross-fjölskyldan ekki ættleitt okkur?

Beyoncé og Tina Knowles

Beyonce þarf ekki að hafa áhyggjur af framtíðinni ef hún á eftir að líkjast móður sinni Tinu þegar hún eldist.

Naomi Campbell og Valerie Campbell

Það er erfitt að segja hvor er mamman og hvor dóttirin. En eitt er víst, bæði Naome Campbell og mamma hennar Valerie eru sjóðheitar.

Kate Hudson og Goldie Hawn

Ljóshærðu bomburnar komu með látum inn í Hollywood og heilluðu alla sem urðu á þeirra vegi.

Kim, Kourtney, Khloe Kardashian og Kris Jenner

Konurnar í Kardashian-fjölskyldunni eru hver annarri fallegri. Mamman, Kris, heldur unglegu útliti sínu með smá skammti af bótoxi en Kim hefur einnig viðurkennt að vera farin að nota eitrið.

Jada Pinkett Smith og Adrienne Banfield-Jones

Jada og mamma hennar minna frekar á systur en mæðgur. Sú yngsta, Willow, er einnig algjört augnayndi og hefur ákaflega skemmtilegan og öðruvísi fatastíl.

Anansa Sims og Beverly Johnson

Anansa fetaði fyrirsætubrautina eins og heimsfræga mamman hennar. Það er ekki slæmt að hugsa til þess að þú munir líta svona út þegar þú eldist.

Cher og Georgia Holt

Genin í þessari fjölskyldu hljóta að vera á sérsamningi. Cher er 66 ára og mamma hennar, Georgia, er 88 ára. Annaðhvort luma þær mæðgur á leyndardómi æskubrunnsins eða hafa aðgang að mjög góðum lýtalækni.

Laila Ali og Veronica Porche

Laila virðist hafa erft það besta frá foreldrum sínum; útlitið frá mömmu sinni og boxhæfileikana frá pabba sínum.

Madonna og Lourdes Leon

Hvernig ætli það sé fyrir unglingsstúlku að eiga mömmu sem er heimsþekkt poppstjarna og lítur jafnvel enn betur út í fötunum þínum en þú?


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.