Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
08:06 › 9. ágúst 2012
Bandaríski leikarinn Robert Pattinson hringdi drukkinn í fyrrverandi kærustu sína Kristen Stewart. Þetta kemur fram í tímaritinu In Touch en Pattinson skildi við mótleikkonu sín í Twilight-myndunum eftir að hann komst að því að hún hafði átt í leynilegu ástarsambandi við leikstjórann Rupert Sanders í nokkra mánuði.
Í tímaritinu er Pattinson sagður hafa hingað til hunsað hringingar frá Stewart en sagður svara henni eftir að hafa fengið sér í aðra tána.
„Hann hafði hunsað hana en á það til að svara henni í síma,“ sagði heimildarmaður In Touch um málið. Vinir Pattinsons reyna hvað þeir geta að sannfæra leikarann um að taka ekki saman við Stewart á ný, en hann er sagður eyðilagður eftir að hafa komist að framhjáhaldinu.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013