Leikarinn Dominic West hafnaði stóru hlutverki í Game of Thrones þáttunum vegna þess að hann hefði þurft að vera á Íslandi í sex mánuði. Í viðtali við Huffington Post segist hann ekki vilja vera langt frá fjölskyldunni en kveðst þó örugglega eiga eftir að sjá eftir þessari ákvörðun sinni.
„Mér var boðið hlutverk í Game of Thrones og því miður hafnaði ég því. Ég hafði ekki séð þættina, en litli frændi minn og pabbi hans sögðu mér að þetta væri eini þátturinn með viti í dag. Þá leið mér nú frekar illa með það að hafa hafnað þeim,“ segir West í viðtali við Huffington Post.
Man ekki hvert hlutverkið var
En hann man þó ekki um hvaða hlutverk var að ræða, en sagði í viðtalinu að það væri álíka stórt og hlutverk Sean Bean, sem lék Ned Stark í þáttunum. Það eru þá ekki margir sem koma til greina, þar sem allar senur sem teknar hafa verið á Íslandi hafa átt sér stað norðan múrsins, og eina persónan sem virðist vera nægilega veigamikil á þeim slóðum til þess að líkja við Ned Stark er Mance Rayder, sem er kallaður „Konungurinn handan múrsins“.
„Þetta var flott hlutverk, skemmtilegt hlutverk. Ég á líklegast eftir að sjá eftir þessu,“ segir West enn fremur um málið. „Vandamálið er að ég á fjögur börn og eins og er hljómar það ekki vel að vera fjarri heimahögunum í langan tíma. Ég fæ nóg af vinnu í London og get verið nálægt fjölskyldunni.“
Þriðja sería þáttanna mun verða tekin upp að hluta til hér á landi og virðist Ísland hljóta veigamikinn sess þar, fyrst West hefði þurft að vera sex mánuði í Reykjavík.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi