„Erfiðast að sjá mig ræða um sjálfs­vígs­hugsanirnar“

Frumsýning á Hrafnhildi

„Erfiðast við að sjá myndina var að sjá mig ræða um sjálfsvígshugsanirnar sem ég hafði og allt það þunglyndislega sem fylgir því að fæðast karlmaður en vera kona,“ segir Hrafnhildur um samnefnda heimildarmynd sem frumsýnd var í Bíó Paradís í gær. „En þær eru þó hluti af sögu minni og nauðsynlegt að fjalla aðeins um þær.“

Kvíðir að sjá myndina á tilboðsverði

Í heimildarmyndinni er fylgst með ferlinu sem Hrafnhildur gengur í gegnum þegar hún leiðréttir kyn sitt. Líkt og aðrir frumsýningargestir sá Hrafnhildur kvikmyndina í fyrsta skiptið í gær . „Mér fannst samt mjög skemmtilegt að horfa á myndina og í raun var það miklu skemmtilegra en ég bjóst við,“ segir Hrafnhildur. „Ef það er samt eitthvað sem ég kvíði fyrir er það þegar ég mun ganga inn í einhverja myndbandaleigu og sjá myndina í hillunum á tilboðsverði út um allt. Þá finnst mér orðið svolítið kjánalegt að fara á myndbandaleigur,“ segir Hrafnhildur og hlær.

Vonar að myndin hjálpi

Hún vonar að heimildarmyndin komi til með að hjálpa fólki að komast yfir erfiða hjalla í lífi sínu. „Það var engin svona heimildarmynd fyrir mig þegar ég þurfti á henni að halda,“ segir Hrafnhildur sem bældi niður tilfinningar sínar í 26 ár þegar hún lifði sem strákurinn Halldór Hrafn. „Ég fann í mesta lagi úrklippur úr gömlum tímaritum um kynskiptinga en fannst þær ekki gefa rétta sýn á hvernig líf þeirra er. Ég tengdi aldrei við þá umfjöllun. Þess vegna vona ég innilega að þessi heimildarmynd muni hjálpa fólki að glíma við erfiðleika sína - ekki einungis erfiðleika sem tengjast kynjaleiðréttingu heldur líka fólki sem á við önnur vandamál að stríða. Ég hvet það til að sjá myndina,“ segir Hrafnhildur.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.