Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
08:48 › 8. ágúst 2012
Kvikmyndaframleiðandinn og leikstjórinn Darren Aronofsky mun hafa skellt sér á Þjóðhátíð í Eyjum. Á Twitter síðu sinni birtir hann mynd af skilti Bleika fílsins við innganginn í Herjólfsdal. Þess að auki birtir hann mynd af sér með lunda í hendinni.
Hann lætur þó ekki fylgja hvenær hann hafi verið þar eða hversu lengi hann hafi dokað við. Hann er sem kunnugt er við tökur á kvikmyndinni Noah hér á landi, meðal annars í Reynisfjöru. Hann hefur verið mjög duglegur við það að birta myndir frá Íslandi á Twitter.

Hemmi Gunn fallinn frá