Haraldur Freyr Gíslason, trommuleikari hljómsveitarinnar Botnleðju, bað kærustu sína Sigríði Eir Guðmundsdóttur um að giftast sér á Þjóðhátíð nú um verslunarmannahelgina. „Er þetta nógu stórt fyrir þig?“ sagði Halli þegar hann kallað kærustu sína fram á sviðið eftir að hafa lokið flutningi á laginu Viltu vera memm á stóra sviðinu í Herjólfsdal þar sem Botnleðja lék.
„Hún sagði alltaf að þetta þyrfti að vera svo stórt þegar ég myndi gera þetta,“ sagði Halli þegar hann lét Þjóðhátíðargesti klappa sambýliskonu sína upp á svið en hann sagði Þjóðhátíð vera kjörinn vettvang því hún sé nú stærsta útihátíðin á landinu.
„Sigríður Eir Guðmundsdóttir! Viltu giftast mér,“ spurði Halli og svaraði Sigríður: „Já!“
Við það brutust út mikil fagnaðarlæti og kallaði Halli yfir hópinn: „Hún sagði já!“

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi