Gunnar Smári Egilsson segir harmsögur um áfengisneyslu á DV.is til að benda á hversu illa þessi sjúkdómur hefur farið með margt glæsilegt fólk.
„Að baki þessum sögum á DV.is eru nokkrar hugmyndir. Í fyrsta lagi að benda á hversu illa þessi sjúkdómur hefur farið með margt glæsilegt fólk. Í öðru lagi að draga fram að þessi sjúkdómur leggst ekki aðeins á þá sem eiga hann skilið; margt frábært fólk, gáfað, fallegt, klárt, skemmtilegt, eldhugar, kjarkfólk og hvað eina, hefur veikst og dáið úr þessum sjúkdómi. Hann hefur lagt betra fólk en mig og þig,“ leggur Gunnar Smári áherslu á.
„Í þriðja lagi kemur fram hversu mikil áhrif sú þjónusta hefur sem þessi sjúklingahópur fær á flestum Vesturlöndum í dag; jafnvel þeir sem ekki ná bata eða löngum edrútíma lifa lengur en fólk sem glímdi við sama sjúkdóm snemma á síðustu öld. Í fjórða lagi held ég að það komi fram í mörgum af þessum sögum að þótt svo virðist sem fólk geti ráðið við sjúkdóminn um skamma hríð, brennt kertið í báða enda, þá vinnur sjúkdómurinn alltaf að lokum. Fólk fær kannski tíu ár þar sem svo virðist sem það láti vímuefnið þjóna sér, en svo tekur sjúkdómurinn yfir og hirðir restina af árunum og lífskraftinum.“
Gunnar Smári Egilsson er í helgarviðtali í DV og ræðir um alkóhólisma, harmsögur og eigin lífsgildi.


Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013