Robert Pattinson er viss um að kærastan hans, Kristen Stewart, hafi verið honum ótrú oftar en einu sinni. Nýlega komst upp að hún hafi átti í ástarsambandi við leikstjórann Rupert Sanders og varð það til þess að Robert flutti úr sameiginlegri íbúð þeirra.
Hann fékk inn í húsi Reese Witherspoon þar sem hann jafnar sig nú. Hann telur nú að hún sé í tygjum við framleiðandann Giovanni Agnelli, en Stewart gistir nú í húsi Agnelli í kjölfar þess að Pattinson flutti út.
„Hann vill fá að vita hvers vegna Kristen sé að gista heima hjá honum. Hann er fáránlega reiður og hefur núna sakað Giovanni um að vera líka að sofa hjá Kristen,“ segir heimildarmaður Radar Online við slúðurmiðilinn.
„Giovanni fékk símtal frá Pattinson um klukkan fjögur í morgun, og hótaði honum öllu illu, væri hann að sofa hjá Kristen,“ segir heimildarmaðurinn enn fremur í dag. „Hann er frá sér numinn vegna þessa. Það hefur enginn hefur séð hann svona áður.“

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi