Agnes M. Sigurðardóttir, nýr biskup Íslands, er í opinskáu viðtali í helgarblaði DV þar sem hún ræðir verkefnin sem blasa við henni í starfi biskups. Í viðtalinu segist Agnes vera hlynnt hjónaböndum samkynhneigðra en hún segir einnig uppvaxtarárin á Ísafirði. Hún hefur gengið í gegnum ýmsa lífsreynslu sem hefur mótað hana bæði í leik og starfi. Þar á meðal eru náttúruhamfarirnar hræðilegu á Vestfjörðum árið 1995 þegar mannskæð snjóflóð féllu í Súðavík og á Flateyri með aðeins níu mánaða millibili en einnig gekk hún í gegnum erfiðan skilnað.
Hún segir að þrátt fyrir að hún sé komin í æðsta embætti íslensku þjóðkirkjunnar fá finni hún ekki fyrir því að það sé kalt á toppnum.
„Það sagði nú einn við mig í Bolungarvík: „það er kalt á toppnum“ en ég er nú ekki farin að finna það að ég sé á toppnum né fyrir kuldanum, enda er ég ekki búin að vera hérna nema í tæpar þrjár vikur formlega, síðan ég tók við, þó ég sé búin að vera lengur að undirbúa mig. En við vitum ekki hvað verður.“
Þetta er aðeins brot af viðtalinu við Agnesi sem birtist í helgarblaði DV. Áskrifendur geta lesið það í heild á DV.is með því að smella á meira.

