Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
12:59 › 3. ágúst 2012
Leikkonan Emma Watson er komin hingað til lands til þess að leika í kvikmyndinni Noah. Á Twitter-síðu sinni hefur hún sent skilaboð til aðdáenda sinna þess efnis að hún sé hér á landi.
„Ég er á ÍSLANDI !! Bú ja!!!!“ Skrifaði hún þar upp úr miðnætti í gær.
Emma er fyrst og fremst þekkt fyrir að hafa leikið Hermione Granger í kvikmyndunum um Harry Potter, en hún fer með hlutverk Ila í Noah.
Russell Crowe og Jennifer Connelly fara sem kunnugt er einnig með hlutverk í myndinni og eru þau hér á landi um þessar mundir.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013