Ásmundur kærður

Þykir vera atvinnumaður í skítkasti

Kæra barst til forsvarsmanna Mýrarboltans um þátttöku þingmannsins Ásmundar Einars Daðasonar á mótinu. Hafna liðsmenn áhugamannaliðsins Djöfull er ég fullur því að leika við hlið Ásmundar sem þeir telja vera atvinnumann í mýrarbolta, þar sem hann hafi það að atvinnu að vera á Alþingi þar sem leðjuslagur og skítkast sé stundað.

Ásmundur, sem mun leika með liðinu Dalasýslu Pink Rams, þarf þó ekki að hafa áhyggjur af því að fá ekki að taka þátt, því forsvarsmenn Mýrarboltans búast við að kæran týnist eða endi hreinlega á bálkesti.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.