Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
08:49 › 22. ágúst 2012
Harry Bretaprins var ekki að fela krúnudjásnið sitt þegar hann heimsótti Las Vegas um helgina heldur hljóp hann berrassaður um hótelherbergi og spilaði strippbilljard með vinum sínum.
Það sem er öllu verra fyrir hann er að myndir af uppátækinu eru nú komnar í hendur bandarísku slúðursíðunnar TMZ.com. Og þeir voru ekki lengi að dæla þeim út á netið.
Harry skemmti sér víst hressilega í Vegas og bauð hópi kvenna með sér upp á herbergi þar sem hann gisti ásamt fríðu föruneyti. En fötin tóku að týnast af fólki eftir því sem leið á kvöldið og var prinsinn enginn eftirbátur þeirra allra hörðustu í þeim efnum.
Myndirnar má sjá hér fyrir ofan, en frétt TMZ.com hér

Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013