Leikkonan Shanelle Howard hefur kært framleiðslufyrirtækið Warner Bros vegna kynferðislegrar áreitni sem hún segist hafa orðið fyrir við vinnslu þáttanna The Mentalist.
Shanelle segir frá því að þegar hún hafi kvartað undan daglegu kynferðislegri áreitni samstarfsfélaga hafi viðbrögðin verið sú að minnka starfshlutfall hennar og fljótlega hafi henni verið vikið frá störfum.
Shanelle lagði fram kæru sína fyrir dómstólum í Los Angeles á föstudag. Ásakar hún fyrrverandi samstarfsfélaga sinn, Lonnie More, um áreitið og segir hann statt og stöðugt hafa viðhaft óviðeigandi orðfæri eins og: „Ég er giftur, en það þýðir ekki að við getum ekki skemmt okkur aðeins.“ „Ertu í g-streng eða í engum nærbuxum?“ Og „Þetta er bara kynlíf, hættu að vera svona íhaldssöm og gefðu þig!“ Áreitnina segir hún einnig hafa falið í sér káf.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013