Alsátt á hliðarlínunni

Þórey Edda Elísdóttir var liðsstjóri íslenska frjálsíþróttahópsins á Ólympíuleikunum í London

„Það gerðist kannski í svona tíu mínútur. En alls ekki meira en það. Ég er svo ótrúlega sátt við þann stað sem ég er á í lífinu í dag,“ segir stangarstökkvarinn Þórey Edda Elísdóttir þegar hún er spurð hvort hana hafi ekki klæjað í fingurna þegar hún fylgdist með Ólympíuleikunum í London á dögunum.

Þórey Edda hefur keppt á þrennum ólympíuleikum en hefur nú lagt skóna á hilluna eftir langan og farsælan feril. Leikarnir í London voru hennar fjórðu ólympíuleikar en í ár fór hún sem liðsstjóri íslenska frjálsíþróttahópsins. „Ég viðurkenni að hafa fengið smá fiðring þegar ég gekk fyrst inn á völlinn með Óðni [Birni Þorsteinssyni] kúluvarpara,“ segir Þórey Edda sem fylgdist að sjálfsögðu vel með stangarstökkinu. „Ég þekkti nokkrar og hélt auðvitað með þeim. Svo sá ég líka gamla þjálfara og fleiri sem ég hef kynnst í gegnum íþróttina eftir allan þennan tíma. Þetta var bara ótrúlega gaman.“

Þórey viðurkennir að hafa stundum kviðið fyrir því að hætta á meðan hún var ennþá að keppa. „Ég hugsaði oft um það hvernig mér ætti eiginlega eftir að líða en sem betur fer ég er bara ofsalega sátt. Þetta var yndislegur tími. Ég lærði svo margt og upplifði svo margt. En ég er búin með þennan pakka og er tilbúin að takast á við næsta verkefni,“ segir Þórey Edda sem er tveggja barna móðir í mastersnámi í verkfræði auk þess sem hún starfar fyrir Frjálsíþróttasamband Íslands.

Aðspurð segir hún íslensku keppendurna hafa staðið sig með prýði á leikunum. „Þau stóðu sig öll alveg ágætlega. Liðið skilar aldrei af sér 100 prósent frammistöðu. Það er ekki hægt að biðja um það. Krakkarnir í frjálsum stóðu sig vel. Allavega tvö af þremur. Þótt það hafi engin medalía skilað sér í þetta skiptið þá var sett Íslandsmet auk þess sem Kári Steinn stóð sig vel í maraþoninu.

Englendingarnir stóðu sig mjög vel í skipulagningunni. Þetta mót tókst framar vonum. Þeir voru sjálfir hálfhissa á hvað þetta heppnaðist allt saman vel. Allavega var þetta flottasta lokahátíðin sem ég hef séð. Þarna var öllu tjaldað til. Allir sjálfboðaliðar brostu og voru almennilegir og hjálpsamir. Fólk tók sér frí frá vinnu til að hjálpa. Svo voru sumir heppnir og fengu að halda á fötunum hans Bolt á meðan aðrir lentu úti á bílastæði.“

Þetta var í fyrsta skiptið sem Þórey Edda fer sem liðstjóri. „Það er aldrei að vita nema ég geri þetta aftur. Allavega væri ég meira en til í það ef ég yrði aftur beðin um það. Ég vona að ég hafi staðið mig ágætlega en efast ekki um að það sé hægt að verða betri liðsstjóri með æfingunni.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.