Pete Burns í reðasafninu

Tók upp sjónvarpsþátt fyrir BBC

Hinn litríki Pete Burns er staddur á Íslandi að taka upp efni fyrir sjónvarpsþátt sem er í bígerð hjá breska ríkissjónvarpinu BBC. Burns var í Hinu íslenzka reðasafni á föstudag ásamt tökuliði en mikil leynd ríkti yfir tökunum og vildu Pete og fylgdarlið hans ekkert segja um dagskrárgerðina þegar DV bar að garði. Þátturinn mun vera skammt á veg kominn og aðeins með vinnuheiti.

Pete Burns er ansi skrautlegur persónuleiki og þekktastur sem aðalsöngvari hljómsveitarinnar Dead or Alive sem sló í gegn með smellinum You Spin Me Round (Like a Record) á níunda áratugnum. Burns vakti ekki síst athygli fyrir kvenlega ímynd sína sem hefur ágerst með árunum og hefur hann haldið henni við með fjölda lýtaaðgerða. Burns hefur sagt hörmungarsögu sína af lýtaaðgerðum í sjónvarpsþáttum og í ævisögu sinni en Burns eyddi nánast öllum fjármunum sínum í aðgerðir eftir að lýtaaðgerð á vörum hans mistókst. Burns sakaði Boy George um að hafa stolið ímynd sinni á sínum tíma en sá síðarnefndi náði töluvert meiri vinsældum í tónlistinni.

Burns skaut aftur upp á stjörnuhimininn í Bretlandi árið 2006 þegar hann tók þátt í Celebrity Big Brother. Þættirnir eru mjög vinsælir þar í landi og þá sérstaklega þessi þáttaröð þar sem voru einnig fyrirsætan Jodie Marsh, körfuboltamaðurinn Dennis Rodman og Baywatch-stjarnan Tracy Bingham en Burns og bomburnar tvær rifust heiftarlega í þáttunum. Í kjölfar þáttanna var Burns með sinn eigin sjónvarpsþátt og hefur unnið við hitt og þetta í tengslum við sjónvarp.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.