Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
17:39 › 2. ágúst 2012
Söngkonan Katy Perry sást yfirgefa Chateau Marmont ásamt tónlistarmanninum John Mayer í gærkvöldi. Hvorki Perry né Mayer hafa staðfest að þau séu í sambandi en fjölmiðlar vestanhafs eru nokkur vissir um að fundur þeirra hafi verið stefnumót. Eftir að hafa snætt kvöldverð á Pace í Los Angeles, Bandaríkjunum, fór parið á Chateau Marmont.
Þau sáust fyrst saman í síðasta mánuði þegar þau gripu sér pizzusneið. Perry skildi nýverið við við breska háðfuglinn Russell Brand en John Mayer var daglegur gestur á síðum slúðarblaðanna í Bandaríkjunum á meðan hann var með leikkonunni Jennifer Aniston.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013